DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:07. okt. kl 17:30-18:00
Skráð 2. okt. 2026

Geitland 13

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
229.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
180.000.000 kr.
Fermetraverð
784.656 kr./m2
Brunabótamat
105.270.000 kr.
Byggt 1969
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20369955
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Mjög fallegt og mikið endurnýjað 229,4 fm raðhús á pöllum við Geitland 13 í Fossvogi. Bílskúr tilheyrir. Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum. Mikil lofthæð er í hluta hússins. Breytingar hafa verið gerðar á hluta hússins sem Gláma Kím teiknaði. Garður til suðurs með stórri timburverönd og grasflöt. Húsið stendur neðan götu og eru bílskúrar í bílskúrslengju á móti húsinu.
Samkvæmt Fasteignayfirliti er húsið skráð 201,8 fm og bílskúrinn 27,6 fm, samtals 229,4 fm.  

Nánari uppl. veitir: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511 magnea@eignamidlun.is

Nánari lýsing:  
Aðalhæð:
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með skápum. Frá forstofu er komið í flísalagt hol með skápum. Falleg stór sérsmíðuð hurð með gleri í er á milli forstofu og hols. Mikil lofthæð er í holi. Inn af holi er flísalögð snyrting. Til vinstri úr forstofu er gengið í eldhúsið. Sérsmíðuð innrétting úr hlyn er í eldhúsi. Steinn er á vinnuborðum. Stór borðkrókur með sérsmíðuðum eldhúsbekk og borði. Inn af eldhúsi er gengið í þvottahús og búr. Einnig er sérsmíðuð innrétting í þvottahúsi og búri. Bakinngangur er í þvottahúsi. Flísar á gólfi í forstofu, holi, eldhúsi, þvottahúsi og búri eru úr náttúrusteini. Á árunum 2001-2002 voru gerðar breytingar á eldhúsi, þvottahúsi, búri og forstofu. Gláma Kím teiknaði breytingarnar. Frá holi er gengið upp þrjú þrep í stofuna. Mjög rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og mikilli lofthæð. Stofan nýtist sem stofa og borðstofa. Auk þess hefur verið stúkað af lítið vinnuherbergi með rennihurð. Áður var sólstofa í stofu en veggur hefur verið tekinn niður og stofan stækkuð. Í stofunni er stór opnanleg rennihurð sem býður upp á gott útsýni yfir garð og til suðurs og möguleika á loftkælingu. Gólf í stofu er parketlagt. 

Neðri hæð:
Steyptur parketlagður stigi er á milli hæða með sérsmíðuðu handriði. Á neðri hæð eru fjögur herbergi, baðherbergi, hol, geymsla og kyndiklefi. Herbergin eru öll parketlögð. Tvö herbergjanna snúa til suðurs og tvö þeirra eru norðan megin (annað herbergjanna norðan megin er mjög stórt en hitt lítið). Frá holi er gengið er út í garð til suðurs (hol mætti einnig nýta sem herbergi). Baðherbergið er flísalagt. Innrétting við vask. Baðkar með sturtu í. Í garði er stór timburverönd og grasflöt. Geymsla er undir stiga. Kyndiklefi er á neðri hæð.

Bílskúr tilheyrir húsinu sem er í bílskúrslengju á móti raðhúsalengjunni. Bílskúrslengjan var nýlega tekin í gegn í viðamikilli framkvæmd sem var farið í árið 2024. Hiti, vatn og rafmagn er í bílskúr. Á bílskúrshurð er talnalás en einnig er hægt að nota fjarstýringu. Útiljós með tímastillingu. Komið er kerfi fyrir rafhleðslu.

Fallegur garður til suðurs með stórri timburverönd og grasflöt. Geymsluskúr er í garði á pallinum og auk þess er krakkahús í garðinum.

Frábær staðsetning á skjólsælum stað. Stutt í leikskóla, skóla og alla helstu þjónustu. Í Fossvogsdalnum er fallegt útivistarsvæði með gönguleiðum.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurbrún 4
Opið hús:05. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Austurbrún 4
Austurbrún 4
104 Reykjavík
48.1 m2
Fjölbýlishús
211
1100 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Aðalland 6
Opið hús:04. okt. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Aðalland 6
Aðalland 6
108 Reykjavík
110.9 m2
Fjölbýlishús
513
901 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 506
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 506
105 Reykjavík
56.7 m2
Fjölbýlishús
211
1173 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 415
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 415
105 Reykjavík
71.3 m2
Fjölbýlishús
312
1088 þ.kr./m2
77.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin