Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir sérlega rúmgott og vel skipulagt raðhús með innbyggðum bílskúr við Kambasel, Reykjavík. Birt stærð hússins er 218,7 fm.
Lýsing, neðri hæð. Forstofa, þvottahús, hol, geymsla, gestasnyrting, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi og bílskúr.
Lýsing, efri hæðin. Hol, stofur, svalir, gestasnyrting, eldhús og herbergi.
Rishæðin. Alrými með súðargeymslum.
Nánari lýsing, neðri hæð. Flísalögð forstofa með skáp. Innaf forstofunni er rúmgott þvottahús með glugga (auðvelt væri að breyta í svefnherbergi), gólfflísar og innrétting. Gott hol með fallegum stiga upp á efri hæðina. Í holinu er gott fatahengi/geymsla. Hjónaherbergi með skáp og hurð út í garðinn.. Mjög rúmgott baðherbergi, allt flísalagt, bæði með baðkari og góðum sturtuklefa, innrétting. Tvö barnaherbergi, annað stærra. Parket er á herbergjunum og holinu.
Lýsing efri hæðin. Rúmgóðar stofur með hurð út á suðursvalir. Óvenju rúmgott eldhús með góðri viðarinnéttingu og góðum borðkrók. Léttur veggur milli eldhúss og stofu, hægt að opna. Flísalögð gestasnyrting með glugga. Skrifstofuherbergi. Parket er á stofunni og eldhúsinu og holið er flísalagt. Góður stigi er úr holinu upp í rishæðina.
Rishæðin. Rúmgott ris, opið rými með tveimur þakgluggum. Parket er á gólfinu og loftið viðarklætt. Góðar súðargeymslur með einangruðu gólfi. Nýtanlegur gólfflötur er ca. 50 fm.
Bílskúr. Innbyggður bílskúr með hliðarhurð.
Stærðir. Birtar stærðir; aðalhæðin er skráð 72,7 fm., efri hæðin er skráð 86,0 fm., rishæðin er skrá 36,9 fm. og bílskúrinn er skráður 23,1 fm. Birt heildarstærð er 218,7 fm.
Húsið er í góðu ástandi, en að miklu leyti í upprunalegu ástandi. Sérlega gott skipulag. Fjögur svefnherbergi. Rishæð, sem mætti skipta upp í herbergi eða nýta sem sjónvarpsstofu. Innbyggður bílskúr. Hiti í bílastæðum framan við húsið. Seljandi er upphaflegur eigandi hússins.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða á kj0reign@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða á dan@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða á asta@kjoreign.is