Vel við haldið og rúmgott fjögurra herbergja endaraðhús á einni hæð með bílskúr á góðum stað í fjölskylduvænu hverfi í Borgarnesi
Fyrirhugað fasteignamat árið 2027 er kr. 71.800.000.-
-- BÓKIÐ SKOÐUN --
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 691-4591 eða á netfangi sjofn@domusnova.is
Hrafnaklettur 5 er 159,3 fm. raðhús á einni hæð að meðtöldum 29,6 fm. bílskúr. Íbúðarrými 129,7 fm., og skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu og borðstofu, þvottahús þaðan sem útgengt er í bakgarð, á svefnherbergisgangi eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi/geymsla og baðherbergi. Innangengt er í 29,6 fm. bílskúr.
Nánari lýsing:
Anddyri: Opið fatahengi. Flísar á gólfi.
Hol: Innbyggður fataskápur. Flísar á gólfi.
Eldhús og stofa: Er í opnu og björtu rými. Eldhúsið með ljósri u-laga innréttingu. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Innrétting f. þvottavél og þurrkara. Vaskur. Útgengt í bakgarð. Flísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur: Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi sem snúa að bakgarði. Parket á gólfi.
Fataherbergi: Fataherbergi með kommóðum og hillum. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með miklu skápaplássi. Baðkar og steypt flísalögð sturta. Flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúr: Sambyggður 29,6, fm. bílskúr, innangengt frá forstofu. Rafmagn, heitt og kalt vatn. Rafdrifinni bílskúrshurð. steypt gólf.
Lóð/garður: Lóðin er 487,0 fm. að stærð, garðurinn er einkar skjólsamur með fjölærum plöntum. Hellulögð verönd fyrir aftan hús með háum skjólvegg og hellulagður göngustígur meðfram húsi. Stórt malarborið bílaplan framan við bílskúr frá götu.
Húsið hefur fengið gott viðhald og margt endurnýjað á síðustu árum, m.a. skipt um alla glugga, húsið múrviðgert og málað að utan, þak nýmálað, skipt um gólfefni að hluta, Neysluvatnslagnir endurnýjaðar, settur varmaskiptir, skipt um útidyrahurð og bílskúrshurð. Áhugasömum er bent á að senda á sjofn@domusnova.is og fá söluyfirlit eignar þar sem nánari upplýsingar eru um framkvæmdir. Möguleiki að bæta við fjórða svefnherberginu.
Góð staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þar sem skólabíll stoppar rétt við húsið, leikvöllur, aparóla og ærslabelgur í nágrenninu.
Nánari upplýsingar veita:
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691-4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is