DV logo
Fasteignaleitin

Dregur úr hækkunum íbúðaverðs þegar líða tekur á árið

Spáum áframhaldandi hækkun á árinu þar til framboð eykst

18 maí 2022
Mynd af Íslandsbanki
Íslandsbanki
Greiningadeild Íslandsbanka
Íbúðaverð er nú orðið mjög hátt í sögulegu samhengi og hefur vikið verulega frá þeim þáttum sem til lengri tíma eru taldir ráða þróun þess. Þetta er vissulega töluvert áhyggjuefni og hefur Seðlabankinn gripið til aðgerða til að stemma stigu við hækkunum og tryggja að fólk skuldsetji sig ekki um of. Bæði hefur hann hækkað stýrivexti og einnig hert á reglum um hámark veðsetningarhlutfalls nýrra íbúðalána og hámarks greiðslubyrði slíkra lána í hlutfalli við ráðstöfunartekjur.
Hingað til hafa þessar aðgerðir ekki haft tilætluð áhrif á íbúðamarkaðinn og teljum við að aukið framboð íbúða þurfi til þess að þessar aðgerðir hafi veruleg áhrif á verðþróunina.
Samkvæmt nýlegri talningu Samtaka iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru nú ríflega 7.000 nýjar íbúðir í byggingu á landinu öllu, þar af um 5.000 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Vonir standa til að töluverður fjöldi nýrra íbúða komi inn á markaðinn þegar líða tekur á árið og vonandi er það nóg til að anna bæði uppsafnaðri þörf sem þegar er til staðar en einnig lýðfræðilegri þróun.
Íbúðaverð hefur þegar hækkað um 8% að nafnvirði fyrstu fjóra mánuði ársins. Við teljum forsendur fyrir því að íbúðaverð haldi áfram að hækka á næstu mánuðum en með auknu framboði nýrra íbúða og dvínandi eftirspurn muni hægja á hækkunartaktinum þegar líða tekur á árið.
Við spáum því að íbúðaverð hækki um 13% að raunvirði á þessu ári og 1% á næsta ári. Fordæmi eru fyrir því að allhratt hægist á hækkunartaktinum eftir miklar verðhækkanir og gerðist það síðast árið 2018 eftir miklar verðhækkanir árin tvö á undan. Við spáum því að íbúðaverð standi í stað að raunvirði árið 2024 en þá hefur jafnvægi myndast á markaðinum.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Flekkudalsvegur 12
Flekkudalsvegur 12
276 Mosfellsbær
121.5 m2
Sumarhús
524
987 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Seiðakvísl 25
3D Sýn
Skoða eignina Seiðakvísl 25
Seiðakvísl 25
110 Reykjavík
121.4 m2
Hæð
412
795 þ.kr./m2
96.500.000 kr.
Skoða eignina Þorraholt 1B Þakíbúð
Bílastæði
Þorraholt 1B Þakíbúð
210 Garðabær
165.2 m2
Fjölbýlishús
423
Fasteignamat 129.100.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Sæviðarsund 54
Opið hús:29. apríl kl 18:00-18:30
Skoða eignina Sæviðarsund 54
Sæviðarsund 54
104 Reykjavík
230.5 m2
Raðhús
624
650 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Skoða eignina Kirkjuvegur 3
Kirkjuvegur 3
625 Ólafsfjörður
170.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
615
247 þ.kr./m2
42.000.000 kr.
Skoða eignina Stóragerði 6
Bílskúr
Opið hús:29. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Stóragerði 6
Stóragerði 6
108 Reykjavík
117 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
78.400.000 kr.
Skoða eignina Gnoðarvogur 38
Skoða eignina Gnoðarvogur 38
Gnoðarvogur 38
104 Reykjavík
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Ásholt 28
Bílastæði
Skoða eignina Ásholt 28
Ásholt 28
105 Reykjavík
124.8 m2
Fjölbýlishús
413
945 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Laugargerðisskóli, Eyja- og Mikla holtshr.
Bílskúr
Laugargerðisskóli, Eyja- og Mikla holtshr.
342 Borgarnes
2,963.3 m2
Jörð/Lóð
96 þ.kr./m2
285.000.000 kr.
Skoða eignina Lindargata 14
Lindargata 14 forsíða  .jpg
Skoða eignina Lindargata 14
Lindargata 14
101 Reykjavík
49.3 m2
Fjölbýlishús
212
1114 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin