Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Nýlega uppgerða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu við Vallarás 2 í Reykjvík.
Um er að ræða einstaklega fallega og bjarta íbúð í góðu lyftuhúsi á frábærum stað í Árbænum með fallegu útsýni og sérmerktu bílastæði.
Eignin skiptist í hol/anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi og suðursvalir.
Íbúðin hefur nánast alveg verið endurnýjuð frá 2019-2026
Það sem búið er að endunýja er:
Ný eldhúsinnrétting frá Ikea og borðplata frá Fantófell.
Ný eldhústæki.
K7 vifta frá Hitatækni í eldhúsi og baðherbergi.
Sérsmíðaðir fataskápar í herbergi frá Axis.
Baðherbergi endurnýjað, sett walk in sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni endurnýjuð með Pergo harðparketi frá Agli, en flísar á baðherbergi.
Nýjir ofnar (ekki ofnalagnir í vegg).
Sett voru ný neystluvantsrör í íbúðina
Vatnsinntökin endurnýjuð í íbúð og sameign.
Allt rafmang í íbúð endurnýjað ásamt töflu.
Nýr dyrasími 2024
Lyfta endurnýjuð fyrir ca 3 árum. Nýtt timbur framan á svölum á öllu húsinu.
Verið er að laga glugga að hluta, eða þá sem nauðsynlega þurfti að skipta um.
Þak endurnýjað 2023
Nýjir gluggar í hluta af húsinu (báðir gluggar nýjir í íbúðinni).
Verið er að setja músanet undir klæðningu.
Fyrirhugað er að klára að skipta út gluggum á næstu árum, endurnýja teppi á sameign og mála sameign.
Skóplrör voru myndu í des 2025 og sögð í lagi.Eignin Vallarás 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign
205-3366, birt stærð 56.5 fm. Íbúð 52,7 fm og geymsla 3,8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 03-03, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða
gimli@gimli.isNánari lýsing:Forstofa/hol: með harðparketi á gólfi
Eldhús: hefur verið endurnýjað á afar smekklegan máta, með hvítri rúmgóðri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp, bakarofni og helluborði á eyju/tanga með góðu vinnuplássi.
Borðstofa/Stofa: eru samliggjandi í opnu rými við eldhús og þaðan er gengið út á góðar suður-svalir með fallegu útsýni í átt að Bláfjöllum.
Baðherbergi: hefur verið endurnýjað með upphengdu salerni, walk in sturtu, handklæðaofni og innréttingu með vaski og rennihurð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að setja ljós í spegil fyrir ofan innréttinguna. Flísar á gólfi og veggjarklæðning á veggjum.
Hjónaherbergi: er mjög rúmgott með nýlegum innbyggðum fataskápum yfir allan vegginn.
Sérgeymsla: er í sameign og er hún skráð 3,8 fm.
Sameiginlegt þvottahús er í sameign með tveimur þvottavélum og einum þurrkara ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Sérmerkt bílastæði.
Niðurlag:Frábær íbúð á góðum stað þar sem kaffishús er í götunni og stutt í leik- og grunnskóla, matvörubúð og frábærar göngu- og hjólaleiðir, Árbæjarsundlaug og hestamannafélagið Fák svo eitthvað sé nefnt.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala