Fasteignaleitin
Opið hús:12. apríl kl 13:00-14:00
Skráð 4. apríl 2025
Deila eign
Deila

Austurbrúnir 6

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
61 m2
5 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
654.098 kr./m2
Fasteignamat
38.050.000 kr.
Brunabótamat
32.550.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Byggt 1992
Sérinng.
Fasteignanúmer
2207317
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Svalir
Upphitun
Rafhitun
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

***NÝTT Á SKRÁ-SUMARBÚSTAÐUR Á EIGNARLANDI-OPIÐ HÚS VERÐUR HALDIÐ LAUGARDAGINN 12. APRÍL KL. 13:00-14:00*** 

Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Sjarmerandi sumarbústað á mjög góðum stað á 6693 fm skógi vöxnu eignarlandi við Austurbrúnir 6 í Ásgarðslandi  í Grímsnes- og Grafningshreppi.  Tvö svefnherbergi eru í húsinu, svefnloft ásamt tveimur geymslum.  Eignin er staðsett á  mjög vinsælu sumarhúsasvæði sem er með lokað símahlið og öryggismyndavél. Rafmagnskynding (möguleiki á að setja hitaveitu).  

VINSAMLEGAST SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í OPIÐ HÚS OG FÁ SENDAN UPPLÝSINGABÆKLING

EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.
IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.


Húsið er skráð 60,7 fm að stærð auk þess er svefnloft þar sem 4-5 manns geta sofið. Húsið skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi með sturtu, eldhús, stofu-og borðstofu sem er eitt opið og bjart rými. Geymsla með hitatanki og köld útigeymsla.

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

Nánari lýsing á eign:
Gólfefni er harðparket og spónaparket.
Komið er inn í litla forstofu með fatahengi og á vinstri hönd eru 2 svefnherbergi og annað herbergið er með tvíbreiðu rúmi og koju, hitt er með tveimur eins manns rúmum og fataskáp. Gengið er upp á svefnloftið úr stiga í holinu og er það með opnanlegum glugga. Baðherbergi með sturtuklefa og upphengdum speglaskáp. Eldhús, stofa-og borðstofa eru eitt opið og bjart rými og útgengt út á verönd sem umlykur húsið að stórum hluta. Eldhúsinnréttingin er viðarlituð með ágætu skápaplássi, ísskápur er undir borðplötu og eldavél með 4 hellum. Geymsla með hitatanki er við inngang hússins og önnur minni köld geymsla er á pallinum. 

Hér er um að ræða sjarmerandi og vel viðhaldið sumarhús á 6693,0 fm eignarlóð á mjög vinsælu svæði á Suðurlandinu. Einungis klukkutíma akstur frá höfuðborginni og stutt er á Selfoss þar sem öll verslun og þjónusta er við hendina. Stutt er til áhugaverðra staða eins og Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Gullfoss og Geysis. Ýmiss afþreyingarþjónusta er í næsta nágrenni svo sem stangveiði, sund og golf auk fallegra gönguleiða. 
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 20.000 á ári. Aðeins einn eigandi af húsinu.  Innbú getur fylgt með í kaupunum fyrir utan persónulega hluti.

 Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina VILLINGAVATN
Skoða eignina VILLINGAVATN
Villingavatn
805 Selfoss
60.6 m2
Sumarhús
12
658 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarrengi 9
Skoða eignina Kjarrengi 9
Kjarrengi 9
805 Selfoss
49.2 m2
Sumarhús
312
791 þ.kr./m2
38.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 8
Skoða eignina Heiðarbraut 8
Heiðarbraut 8
805 Selfoss
50.8 m2
Sumarhús
312
817 þ.kr./m2
41.500.000 kr.
Skoða eignina A-Gata í Landi Norðurkots 6
undefined A-Gata í Landi Norðurkots 6
805 Selfoss
65.1 m2
Sumarhús
32
613 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin