ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Virkilega spennandi, bjart og fallegt 7 herbergja einbýlishús við Valbraut 7 í Garði, skráð 131 fm. Húsið er í heild 188,6 fm þar af bílskúr 50,4 fm. Efri hæð húsins er undir súð svo þar eru óskráðir fermetrar. Rúmgóð og vel staðsett fjölskyldueign í nálægð við alla helstu þjónustu.
**Fallegt, rúmgott og mikið endurnýjað fjölskylduhús með 5 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stórum opnum stofum, nýju eldhúsi, nýju baðherbergi og stórum bílskúr**Frekari upplýsingar og skoðunarbókanir:
Unnur Svava, löggiltur fasteignasali: unnur@allt.is eða í síma 868-2555
Elínborg Ósk Jensdóttir, löggiltur fasteignasali: elinborg@allt.is** Þak endurnýjað
** Eldhús endurnýjað
** Baðherbergi endurnýjað
** Þvottahúsi endurnýjað
* Allar lagnir endurnýjaðar
* Nýtt inntak fyrir fyrir heitt og kalt vatn
* Nýtt ofnakerfi í skúr ásamt innréttinguog vaski
* Nýjir gluggar og útihurðar
* Húsið málað að utan 2022
* Klæðning tekin af og skoðað undir hana 2022
* 5 svefnherbergi
* 2 baðherbergi
* Stór bílskúr
* Afgirtur pallur og stór garður með heitum potti
* Góð staðsetning**Fallegt fjölskylduhús á frábærum stað í nálægð við alla helstu þjónustu, sem vert er að skoða** ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.