Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Fjóluhvammur 1, Fellabæ Um er að ræða hús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. BÁÐAR EIGNIRNAR Í HÚSINU ERU TIL SÖLU. Hér er um að ræða íbúð á efri hæð hússins ásamt bílskúrnum. Hvor íbúð hefur sérinngang og ekki er opið milli hæða. Efri hæðin er rúmgóð og björt. Útgengt er á svalir úr stofu. Svalirnar eru rúmgóðar og ná meðfram 2 hliðum hússins, að sunnan og austanverðu. Eldhúsið er rúmgott og með nokkuð stórri innréttingu. Af dyrapalli eru 2 inngangar í íbúðina, annar inn í hefðbundna forstofu en hinn inn í mjög rúmgott og notadrjúgt þvottahús. Gott geymslupláss er í þvottahúsi og þar er stór og góð innrétting með upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsinu er lúga upp í geymslurými sem er yfir allri hæðinni. Baðherbergi uppi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi og nokkuð rúmgóð innrétting. 3 svefnherbergi eru á efri hæð. Fataskápar eru í 2 herbergjum. Bílskúrinn er 55,3 fermetrar, flísalagður og mjög snyrtilegur. Snyrting er inn úr bílskúrnum ásamt góðri geymslu. Ekki er innangengt í bílskúrinn en hann er með 2 góðum bílskúrshurðum og er gönguhurð í annnari. Hurð með rafdrifnum opnara er á annari bílskúrshurðinni. Lóð hússins er 952 m². Húsið stendur hátt. Húsið er kynt með hitaveitu. Heitur pottur er á lóðinni bakvið húsið og fylgir hann þessari íbúð við sölu. Stórt malarborið bílaplan er framan við húsið. Eignaskiptasamningur gerir ráð fyrir 2 bílastæðum við hvora íbúð í húsinu. Garðurinn er gróinn og tiheyrir þessari íbúð að fullu fyrir utan timburverönd sem tilheyrir neðri hæð. Fjóluhvammur er róleg botnlangagata í fallegu umhverfi. Stærð íbúðarinnar skv. fasteignaskrá er 122,7 m2 og bílskúrsins 55,3 m2
Byggt 1992
178 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2248497
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður- og austursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
ÁBENDING: Æskilegt væri að leggja nýja klóaklögn frá húsvegg út í brunn á lóð þar sem núverandi lögn liggur i kröppum beygjum við húshornið og að brunninum og er auk þess lögð í drenrör. Þessi lögn er eingöngu fyrir efri hæð hússins og bílskúrinn.
Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Fjóluhvammur 1, Fellabæ Um er að ræða hús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. BÁÐAR EIGNIRNAR Í HÚSINU ERU TIL SÖLU. Hér er um að ræða íbúð á efri hæð hússins ásamt bílskúrnum. Hvor íbúð hefur sérinngang og ekki er opið milli hæða. Efri hæðin er rúmgóð og björt. Útgengt er á svalir úr stofu. Svalirnar eru rúmgóðar og ná meðfram 2 hliðum hússins, að sunnan og austanverðu. Eldhúsið er rúmgott og með nokkuð stórri innréttingu. Af dyrapalli eru 2 inngangar í íbúðina, annar inn í hefðbundna forstofu en hinn inn í mjög rúmgott og notadrjúgt þvottahús. Gott geymslupláss er í þvottahúsi og þar er stór og góð innrétting með upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsinu er lúga upp í geymslurými sem er yfir allri hæðinni. Baðherbergi uppi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi og nokkuð rúmgóð innrétting. 3 svefnherbergi eru á efri hæð. Fataskápar eru í 2 herbergjum. Bílskúrinn er 55,3 fermetrar, flísalagður og mjög snyrtilegur. Snyrting er inn úr bílskúrnum ásamt góðri geymslu. Ekki er innangengt í bílskúrinn en hann er með 2 góðum bílskúrshurðum og er gönguhurð í annnari. Hurð með rafdrifnum opnara er á annari bílskúrshurðinni. Lóð hússins er 952 m². Húsið stendur hátt. Húsið er kynt með hitaveitu. Heitur pottur er á lóðinni bakvið húsið og fylgir hann þessari íbúð við sölu. Stórt malarborið bílaplan er framan við húsið. Eignaskiptasamningur gerir ráð fyrir 2 bílastæðum við hvora íbúð í húsinu. Garðurinn er gróinn og tiheyrir þessari íbúð að fullu fyrir utan timburverönd sem tilheyrir neðri hæð. Fjóluhvammur er róleg botnlangagata í fallegu umhverfi. Stærð íbúðarinnar skv. fasteignaskrá er 122,7 m2 og bílskúrsins 55,3 m2
Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
10/03/2021
35.250.000 kr.
62.000.000 kr.
245.6 m2
252.442 kr.
Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.