BYR fasteignasala kynnir í einkasölu MÁNATRÖÐ 19, 700 Egilsstaðir. Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr og aukaíbúð.
Stutt í alla almenna þjónustu s.s. grunnskólann og Menntaskólann á Egilsstöðum, sundlaugina og íþróttahúsið. Smellið hér fyrir staðsetningu.Eignin er skiptist í einbýlishús byggt árið 1978 104,0 m² að stærð, bílskúr og geymslu í kjallara byggt árið 1981(hvort um sig 46.4 m²) 92.8 m², samtals 196.8 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, fjögur herbergi, baðherbergi og gangur. Bílskúr og geymsla. Aukaíbúð
: Anddyri, alrými og baðherbergi.
Nánari lýsing: Forstofa, fataskápur.
Eldhús, innrétting með eyju, borðkrókur, helluborð, vifta, ofn og ofn/örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Stofa og borðstofa eru opin við gang og eldhús, útgengt er úr borðstofu út á timburverönd.
Gangur liggur að öðrum rýmum eignarinnar.
Herbergin eru fjögur, eitt þeirra er í dag notað sem fataherbergi, fataskápar eru í fataherbergi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf að mestu leyti, hornbaðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, vaskinnrétting, handklæðaskápur og handklæðaofn.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi, hækkun fyrir tvær vélar, útgengt er frá baðherbergi út í bakgarð. Hiti er í hluta af gólfi á baðherbergi.
Gólfefni: Flæðandi harðparket er á stofu, borðstofu, eldhúsi, gangi og herbergjum. Flísar á forstofu og baðherbergi.
Bílskúr er skráður 46.4 m², undir bílskúr er
kjallari/geymsla skráður 46.4 m². Málað gólf er í bílskúr, gryfja, lúga niður í kjallara/geymslu, heitt og kalt vatn, vaskur er í kjallara.
Aukaíbúð: Hluti bílskúrs hefur verið innréttaður sem
aukaíbúð (er í útleigu).
Anddyri með flísum á gólfi, anddyri er opið að alrými, handklæðaofn.
Alrými, harðparket á gólfi, eldhúsinnrétting með helluborði, gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingu.
Baðherbergi, flísar á gólfi, handlaug á skáp, salernig og sturtuklefi, gluggi.
Mánatröð 19 er timburhús á einni hæð klætt að utan með standandi timburklæðningu, járn á þaki, timburgluggar og hurðar.
Möl er í bílastæði, pláss fyrir fjórar bifreiðar. Hellulagt er við inngang íbúðarhúss og aukaíbúðar, lóð er gróin, timburverönd með skjólveggjum. Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur.
Lóð er 690.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Garður er gróinn og afar skjólsæll. Nokkuð stór timburverönd er í garði. Húsið var málað að utan árið 2011.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-5969.Stærð: 01.0101 Íbúð 104.0 m². 02.0102 Bílskúr 46.4 m². 02.0101 Geymsla 46.4 m². Samtals 196.8 m².
Brunabótamat: 86.150.000 kr.
Fasteignamat: 75.500.000 kr
Byggingarár: Íbúð 1978. Bílskúr og geymsla 1981.
Byggingarefni: Timbur.