DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

Hörðukór 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
96.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
806.418 kr./m2
Fasteignamat
75.600.000 kr.
Brunabótamat
60.070.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2006
9. hæð af 16
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2282719
Landnúmer
196828
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
09
Hæðir í húsi
16
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt (2006)
Raflagnir
Upprunalegt (2006)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2006)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2006)
Þak
Upprunalegt (2006)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
1,54
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja útsýnisíbúð á 9. hæð með suðvestursvölum og stæði í lokaðri bílageymslu við Hörðukór 1 í Kópavogi. Um er að ræða rúmgóða og fallega eign á 9. hæð með miklu útsýni. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús, sjónvarpshol og bjart og rúmgott alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir með svalalokun og frábæru útsýni. Eigninni fylgir 7,0 m² geymsla í kjallara og sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu. Eignin er vel staðsett í Kórahverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 96,6 m², þar af er íbúðin 89,6 m² og sérgeymsla 7,0 m². Eigninni fylgir jafnframt stæði í lokaðri bílageymslu.

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM - FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Nánari lýsing eignar
Forstofa/hol: Komið er inn í hol með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Alrými: Eldhús, borðstofa, stofa eru samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými með góðum gluggum og fallegu útsýni.
Eldhúsið: Opið við stofu og borðstofu, snyrtileg innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi.
Borðstofa: Rúmgott borðstofurými er við eldhús
Stofa: Björt og rúmgóð með parket er á gólfi og útgengi á suðvestur svalir.
Svalir: Rúmgóðar (9,1 m²) suðvestursvalir með svalalokun og víðáttumiklu útsýni.
Sjónvarpshol: Gert er ráð fyrir sjónvarpsholi á gangi, en þar er parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðum fataskápum. Parket er á gólfi.
Svefnherbergi: Bjart og gott svefnherbergi með fataskáp. Parket er á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, innréttingu við handlaug, salerni og handklæðaofni.
Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og góðu geymslu- og vinnuplássi. Flísar eru á gólfi.
Geymsla: Eigninni fylgir 7,0 m² sérgeymsla í kjallara hússins.
Bílageymsla: Eigninni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu. Innangengt er með lyftu niður í bílageymslu.
Sameign: Sameign hússins er snyrtileg og vel um gengin. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.

** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Staðsetning
Eignin er staðsett á góðum stað í Kórahverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Skólar og leikskólar eru í næsta nágrenni ásamt verslun, íþróttaaðstöðu og fallegum útivistarsvæðum. Góðar göngu- og hjólaleiðir eru í hverfinu og stutt er í helstu stofnbrautir.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/05/201426.200.000 kr.30.118.000 kr.96.6 m2311.780 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2006
Fasteignanúmer
2282719
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
6
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.020.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg (225)
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 12:30-13:00
225 nýr áfangi.png
Skoða eignina Laugaborg (225)
Laugaborg (225)
105 Reykjavík
110.5 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (119)
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 12:30-13:00
forsíða nýr áfangi 119.png
Skoða eignina Laugaborg (119)
Laugaborg (119)
105 Reykjavík
101.9 m2
Fjölbýlishús
312
963 þ.kr./m2
98.100.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (312)
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 12:30-13:00
L312.png
Skoða eignina Laugaborg (312)
Laugaborg (312)
105 Reykjavík
104 m2
Fjölbýlishús
412
1028 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (323)
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 12:30-13:00
323 nýr áfangi.png
Skoða eignina Laugaborg (323)
Laugaborg (323)
105 Reykjavík
94 m2
Fjölbýlishús
312
959 þ.kr./m2
90.100.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin