Miklaborg kynnir: Heillandi íbúð á tveimur hæðum í þríbýlishúsi í hjarta Þingholtanna. Eignin er skráð 115,7 fm, þar af er neðri hæðin 71 fm og sú efri 44,7 fm en hún er að hluta undir súð. Húsið var byggt árið 1906 og er bárujárnsklætt timburhús á steyptum grunni. Eignin hefur mikinn karakter, aukna lofthæð og fallegar upprunalegar áherslur. Húsið og íbúðin hefur fengið gott og reglulegt viðhald í gegnum árin og er í góðu ástandi. Sameiginlegur inngangur er með fyrstu hæð hússins. Húsið stendur á eignarlóð.
Eignin skiptist í 3 stofur, 3 svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Á neðri hæð er eldhús, baðherbergi, tvær samliggjandi stofur og svefnherbergi sem er í dag nýtt sem skrifstofa. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi auk rúmgóðs rýmis sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og gefur eigninni mikla sérstöðu. Á efri hæðinni eru fallegir sýnilegir bitar í lofti og mikil lofthæð þar sem hún er mest. Þar er einnig geymslurými.
Eigninni fylgir köld sameiginleg geymsla í bakgarði.
Eignin státar af 3 svölum með fallegu útsýni til allra átta. Þær stærstu, sem snúa í vestur, eru 14 fm og að hluta yfirbyggðar að norðanverðu.
Sannkölluð miðbæjarperla á besta stað í miðbænum.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa: Komið er inn um sameiginlegan inngang, þaðan er gengið upp tröppur á rúmgóðan stigapall með glugga og fataskáp.
Stofa/borðstofa: Af stigapalli er gengið er inn í bjarta stofu með fallegum gluggum og útsýni, borðstofan er samliggjandi stofunni, rúmgóð og björt og tengist stofunni með fallegri franskri glerhurð. Aukin lofthæð og upprunalegar rósettur í lofti.
Herbergi: Úr borðstofu er gengið inn í notalegt herbergi með glugga sem að snýr út í bakgarðinn.
Eldhús: Innangengt úr stofu, rúmgott og vel skipulagt með skápum á þrem veggjum og eyju. Gegnheil eik á eyju og eldhúsbekkjum. Eldhúsið er sannkallað hjarta heimilisins.
Baðherbergi: Er með baðkari, innréttingu og þvottaaðstöðu. Gengið er úr baðherberginu út á svalir.
Efri hæð: Fallegur viðarstigi liggur upp í bjarta og notalega rishæð. Þar eru tvö svefnherbergi með þakgluggum, auk stofu eða sjónvarpshols. Fallegir burðarbitar í lofti og allt að fjögurra metra lofthæð þar sem hún er mest. Á hæðinni hefur verið stúkað af geymslurými. Gengið er út á tvennar svalir af hæðinni með fallegu útsýni yfir Vesturbæinn og upp að Hallgrímskirkju til austurs.
Upprunaleg furugólfborð eru á gólfum neðri og efri hæð og eikarparket á hluta efri hæðar. Á baðherbergi eru flísar á gólfi.
Eignin er að mestu í upprunalegum stíl og hefur verið vel við haldið.
Húsið var málað að utan árið 2020, auk þess sem þak var yfirfarið og málað sama ár. Tröppur fyrir framan hús eru ný endurgerðar. Svalir voru endurbyggðar árið 2018 og skipt um gler í gluggum á efri hæð. Rafmagnstafla var yfirfarin og löguð endurnýjuð árið 2016.
Þetta er virkilega heillandi eign fyrir þá sem kunna að meta sögu, karakter og miðlæga staðsetningu. Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast fallegt heimili í einu eftirsóttasta hverfi Reykjavíkur, í göngufæri við miðbæinn, verslanir, veitingastaði, þjónustu og allt það sem Þingholtin hafa upp á að bjóða.
Listi yfir framkvæmdir
2023: Útitröppur steyptar og múrhúðaðar.
2021: Skipt um gler í gluggum efri hæðar (fyrir utan þakglugga). Lagt rafmagn á efri svalir.
2020: Hús og þak málað. Skipt um glugga á baðherbergi. Hús drenað að framan.
2018: Stærri svalir á efri og neðri hæð endurbyggðar og þak á bíslagi dúklagt.
2015: Eldhús endurnýjað. Rafmagnstafla löguð og yfirfarin.
2013: Minni svalir á efri hæð byggðar og þak dúklagt.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 23/11/2011 | 24.300.000 kr. | 31.000.000 kr. | 115.7 m2 | 267.934 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 98,3 | 78,5 | ||
105 | 98,1 | 98,9 | ||
105 | 116,4 | 124,9 | ||
105 | 110,5 | 106,9 | ||
105 | 101,9 | 98,1 | ||
105 | 104 | 106,9 |