Nýtt á skrá! Kuggavogur 1 Reykjavík - Bókið skoðun.
--- Leyfi fyrir gæludýrahaldi --- Kuggavogur 1 Reykjavík
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega 105,1 fermetra 4ra herbergja fjölskylduíbúð með rúmlega 30 fermetra verönd í nýlegu fjölbýlishúsi við Kuggavog 1 í Reykjavík. Leyfi fyrir gæludýrahaldi er í húsinu. Fallegt útsýni út á sundin, yfir bryggjuhverfið í Grafarvogi og að Grafarholti.
Þrjú svefnherbergi og rúmgott alrými. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Nýleg rafhleðslustöð við stæði í bílakjallara fylgir. Útgengi úr stofu á stóra afgirta verönd inn í bakgarð. Lyfta í sameign hússins. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð 8,6 fermetra sérgeymsla á jarðhæð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Verið er að setja upp lyklalaust aðgengi í kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.
Fasteignamat ársins 2025 er kr. 80.000.000,-
Nánari lýsing:Forstofa: Er rúmgóð, með vínylparketi á gólfi og fataskápum.
Stofa: Er rúmgóð, með vínylparketi á gólfi og gluggum til norðausturs með fallegu útsýni. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi á verönd frá stofu.
Verönd (sérafnotaflötur): Er stór, afgirtur og með fallegu útsýni út á sundin. Timburklæddur og snýr inn í bakgarð.
Eldhús: Með vínylparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með vínylparketi á gólfi, skápum og gluggum til vesturs.
Svefnherbergi II: Með vínylparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi III: Með vínylparketi á gólfi, skápum og glugga til norðausturs.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 8,6 fermetrar að stærð. Málað gólf.
Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Nýleg rafhleðslustöð fylgir með stæði í bílageymslu.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is