Fasteignaleitin
Opið hús:04. júní kl 17:30-18:00
Skráð 28. maí 2025
Deila eign
Deila

Heiðarsel 21

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
196.8 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
634.654 kr./m2
Fasteignamat
98.750.000 kr.
Brunabótamat
91.850.000 kr.
HF
Heiðar Friðjónsson
Löggildur Fasteignasali
Byggt 1979
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2054960
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler endurnýjað að hluta
Þak
Upphaflegt
Svalir
Suður svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
NÝTT Í SÖLU,  196,8 fm endaraðhús á góðum stað við Heiðarsel 21 í Seljahverfi Reykjavíkur. Húsið er á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum sem auðveldlega er hægt að fjölga. Á neðri hæðinni eru í dag tvö herbergi, gestasnyrting, sjónvarpsherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr. Á efri hæðinni eru tvö herbergi, eldhús með búri innaf, þar er hægt að hafa þvottavél, baðherbergi með baðkari og sturtu og rúmgóðar bjartar stofur með arni og suður svölum.  Í kringum húsið er góður garður og sérlega góð verönd í suður og vestur. Um er að ræða flotta staðsetningu í Seljahverfi.

ATH. Opið hús er á eigninni miðvikudaginn 4. júní frá kl. 17.30 til 18.00


Nánara skipulag:
Komið er inn í flísalagt anddyri með góðum skáp. Innangengt er í forstofuherbergi með parketi á gólfi og skáp. Opið sjónvarpsrými er gengt stiganum upp á efri hæð, því er auðveldlega hægt að loka og breyta í herbergi.  Þvottahúsið er mjög rúmgott með flísum og glugga. Gengið er upp tvö þrep þar er geymsla með glugga og herbergi með skáp. Af ganginum er útgengi út í bakgarðinn.
Fallegur stigi er upp á efri hæð húsins, þar er eldhús með eldri innréttingu og ágætum tækjum, korkur á gólfi, inn af eldhúsi er búr þar sem lagt er fyrir þvottavél.  Tvö herbergi eru á efri hæð bæði rúmgóð og góðir skápar í báðum herbergjum, parket á gólfum.  Stofurnar eru mjög rúmgóðar og bjartar með parketi á gólfi og fallegum viðarþiljum í lofti, og fallegum arni, útgengi út á suður svalir.
Bílskúrinn er 26,6 fm, í honum er lúga undir húsið, og er lagnakjallarinn undir öllu húsinu, en í honum er malagólf. Lofthæð í kjallaranum sem er ekki skráður er nokkuð góð og er möguleiki á að nota hann með einhverjum hætti. Með auðveldum hætti væri hægt að fjölga herbergjum um tvö og væri þetta þá sankallað fjölskylduhús. 

Um er að ræða eitt að best staðsettu endaraðhúsum í Seljahverfi með fallegu útsýni úr stofum, þetta er skemmtilegt fjölskylduhús með allskonar möguleikum.
Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fasteignasali í s. 693-3356 og heidar@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fífusel 22
Bílskúr
Skoða eignina Fífusel 22
Fífusel 22
109 Reykjavík
242.8 m2
Fjölbýlishús
925
473 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hagasel 14
Skoða eignina Hagasel 14
Hagasel 14
109 Reykjavík
176.4 m2
Raðhús
715
663 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Hagasel 2
Bílskúr
Skoða eignina Hagasel 2
Hagasel 2
109 Reykjavík
161.4 m2
Raðhús
615
756 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 47
Bílskúr
Skoða eignina Kambasel 47
Kambasel 47
109 Reykjavík
218.7 m2
Fjölbýlishús
624
546 þ.kr./m2
119.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin