Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: ***NÝLEGT ENDARAÐHÚS Á FJÖLSKYLDUVÆNUM STAÐ***
Fasteignasalan TORG kynnir eignina Núpahraun 26, 815 Þorlákshöfn, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 250-8900 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Núpahraun 26 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-8900, birt stærð 253.7m2.
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS
Glæsilegt og einstaklega bjart 4–5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr og góðum suður- og vesturgarði á rólegum og fjölskylduvænum stað í Þorlákshöfn. Eignin er nýleg, fallega hönnuð og býður upp á mikla möguleika, meðal annars möguleika á aukaíbúð eða herbergi í bílskúr.
Eignin er skráð 148,4 fm samkvæmt FMR, þar af er íbúðarhlutinn 105,3 fm og bílskúr 43,1 fm. Húsið stendur á góðum endastað í nýlegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttir og fallega náttúru.
Helstu kostir:
Endaraðhús með góðum suður- og vesturgarði.
Mikil lofthæð, allt að 4,5 m.
Bjart og rúmgott alrými.
Þrjú svefnherbergi í íbúðarhluta auk herbergis/geymslu við bílskúr.
43,1 m2 innbyggður bílskúr.
Möguleiki á að útbúa aukaíbúð eða aðstöðu með sérinngangi í hluta bílskúrs.
Gólfhiti í allri eigninni.
Bílastæði fyrir allt að þrjá bíla og gert ráð fyrir snjóbræðslu.
Lagnaleið fyrir hleðslustöð rafbíls.
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð og snyrtileg forstofa með góðum fataskápum.
Stofa og borðstofa: Einstaklega bjart og rúmgott alrými með mikilli lofthæð sem gefur eigninni skemmtilegan karakter. Útgengt er úr stofu í garð til suðurs og vesturs þar sem hægt er að njóta sólar stóran hluta dagsins.
Eldhús: Nútímalegt og vel skipulagt eldhús með góðu skápaplássi og eyju. Samsung helluborð og ofn í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og gert ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum.
Svefnherbergi II og III: Bæði eru parketlögð og með fataskápum.
Herbergi/geymsla: Inn af bílskúr er gott rými sem í dag nýtist sem herbergi. Það er skráð sem geymsla og þaðan er sérútgangur út í garð.
Baðherbergi: Fallegt og nútímalegt, flísalagt í hólf og gólf, með walk-in sturtu, upphengdu salerni og snyrtilegri innréttingu.
Þvottahús: Gott þvottahús með vinnuborði og skolvaski. Innangengt er þaðan í bílskúr.
Bílskúr: Rúmgóður, 43,1 fm innbyggður bílskúr með flísalögðu gólfi. Þar eru inntök, gólfhitakista, hitastýringarkerfi og rafmagnstafla. Miklir möguleikar eru á frekari nýtingu bílskúrsins, meðal annars til að útbúa aukaíbúð eða aðra aðstöðu með sérinngangi, að fengnum nauðsynlegum samþykktum og leyfum.
Lóð og bílastæði: Góð lóð við endann á húsinu með garði til suðurs og vesturs. Bílastæði eru fyrir allt að þrjá bíla og gert er ráð fyrir snjóbræðslu í bílaplani.
Húsið er klætt dökkgráu liggjandi bárustáli með hvítum timburinnskotum. PVC-gluggar eru hvítir að innan og utan. Á þaki er svart stallað þakstál og álrennur eru á þakkanti. Harðparket er á alrými, gangi og svefnherbergjum en flísar í anddyri, baðherbergi og þvottahúsi. Gólfhiti er í allri eigninni með stýringum. Upptekið loft er í eigninni og lofthæð fer hæst í um 4,5 metra.
Hér er um að ræða bjarta, nútímalega og vel skipulagða fjölskyldueign með stórum bílskúr, góðu útisvæði og miklum möguleikum á skemmtilegum stað í Þorlákshöfn.
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.