Fasteignaleitin
Opið hús:11. maí kl 13:00-13:30
Skráð 5. maí 2025
Deila eign
Deila

Eskiás 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
127.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
859.265 kr./m2
Fasteignamat
91.500.000 kr.
Brunabótamat
73.050.000 kr.
Mynd af Darri Örn Hilmarsson
Darri Örn Hilmarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Sérinng.
Fasteignanúmer
2515934
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg 4-5 herbergja íbúð á jarðhæð við Eskiás 1, íbúð 104. Eignin er skráð 127,9fm með sér inngangi í nýlegu litlu fjölbýli á mjög góðum stað í Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 3 svefnherbergi (4 svefnherbergi skv. upprunalegum teikningum) og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla er innan íbúðarinnar og sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is

Nánari upplýsingar:  Gengið er inn um sér inngang á fyrstu hæð. Komið er inn í anddyri með innbyggðum fataskápum. Alrýmið er opið og bjart en þar rúmast eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpskrókur. Frá stofu er gengið út á verönd til suð-austurs. Eldhúsið er með fallegri innréttingu og eyju frá NOBILIA. Steinn er á borðum, innfellt spanhelluborð, bakaraofn, innbyggður ísskápar og innbyggð uppþvottavél. Svefnherbergin eru þrjú en skv. upprunalegum teikningum eru þau fjögur. Hjónaherbergið er með fataherbergi og hurð sem snýr út í sameiginlegan garð. Barnaherbergin tvö eru einnig með fataskápum. Þar sem fjórða svefnherbergið er á teikningum er í dag sjónvarpskrókur og væri auðveldlega hægt að bæta við herbergi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf en þar er "walk in" sturta, upphengt salerni og falleg ljós innrétting með handlaug. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn í innréttingu. Sér geymsla er innan íbúðar en til viðbótar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. 

Bílastæði eru á lóð og gert er ráð fyrir nokkrum fjölda hleðslustæða. Allar íbúðir með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Viðhaldslítil klæðning á húsum og lágmarkssameign tryggir hagkvæman rekstur íbúða. Eskiásinn er í miðju grónu hverfi með alla þjónustu í næsta nágrenni. Skólar, verslun og þjónusta eru allt í kring auk þess sem Garðabær hyggst byggja nýjan leikskóla á Lyngási fyrir neðan Eskiás.

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/10/202248.000.000 kr.94.500.000 kr.127.9 m2738.858 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kjarrmóar 13
Opið hús:08. maí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Kjarrmóar 13
Kjarrmóar 13
210 Garðabær
140 m2
Raðhús
525
850 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 1
Opið hús:08. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eskiás 1
Eskiás 1
210 Garðabær
117.9 m2
Fjölbýlishús
514
847 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarás 3
Skoða eignina Bjarkarás 3
Bjarkarás 3
210 Garðabær
120.4 m2
Fjölbýlishús
312
829 þ.kr./m2
99.850.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 38
Bílastæði
Opið hús:07. maí kl 17:45-18:15
Skoða eignina Maríugata 38
Maríugata 38
210 Garðabær
143.7 m2
Fjölbýlishús
413
765 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin