DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 24. júlí 2026

Völuskarð 4

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
296.8 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
224.900.000 kr.
Fermetraverð
757.749 kr./m2
Brunabótamat
189.250.000 kr.
Byggt 2022
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25047361
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Nýlegt og glæsilegt 296,8 fm einbýli á tveimur hæðum með góðu útsýni við Völuskarð 4 í Skarðshlíð, 221 Hafnarfirði.
Eignin skiptist í 150,2 fm neðri hæð, 103,7 fm efri hæð og 42,9 fm bílskúr, samtals 296,8 fm skv. HMS, að auki er möguleiki á c.a. 24 fm stækkun úr óuppfylltu rými.

Nánari upplýsingar:
Efri hæð:
Rúmgott anddyri með skápum. Baðherbergi með vegghengdu salerni og walk-in sturtu m/innbyggðum blöndunartækjum innaf anddyri. Eitt svefnherbergi með skápum er á hæðinni sem nýtist sem sjónvarpsherbergi í dag. Eldhús, stofa og borðstofa í rúmgóðu og björtu alrými með allt að c.a. 4,2m lofthæð og útg. á 24,6 fm þaksvalir. Eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi, innbyggðum ísskápi og uppþvottavél, ofni og combi-ofni í vinnuhæð ásamt eyju með helluborði m/innbyggðri viftu og stæði fyrir barstóla. Að auki er búið að breyta geymslu á hæðinni í bar aðstöðu með nettri innréttingu, þaðan er innangengt í rúmgóðan bílskúr. Bílskúr er með góðu skápaplássi, vinnuborði úr stáli, epoxy á gólfi, millilofti og rafstýrðri hurðaopnun ásamt sérinngöngu hurð.

Neðri hæð: Fjögur svefnherbergi, öll með skápum, þ.m.t. hjónaherbergi með walk-in fataskápum og sér baðherbergi með vegghengdu salerni og walk-in sturtu m/innbyggðum blöndunartækjum. Rúmgott aðal baðherbergi með baðkari, walk-in sturtu m/innbyggðum blöndunartækjum, vegghengdu salerni, innréttingu með tveimur vöskum og spegli m/baklýsingu. Þvottahús með innréttingu m/vaski, góðu skápaplássi, vinnuborði og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt útg. á verönd. Geymsla með skápum innaf þvottahúsi. 

Veröndin skiptist í lokaðan pall með heitum potti og stóran grasflöt. Steyptur stigi sem leiðir uppá bílaplan er sitthvoru megin við húsið. Bílaplanið er steypt með dökkri steypu og snjóbræðslu undir. 

Húsið er vel staðsett í efstu botnlangagötu í Skarðshlíðinni, með glæsilegu útsýni þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru.

 
  • Loftræstikerfi er í húsinu.
  • Búið er að setja upp Greton snjallstýringu frá Reykjafell í húsið.
  • Lokað neysluvatnskerfi.
  • Húsið er hitað upp með gólfhita í íbúðarhluta en hefðbundnu ofnakerfi í bílskúr.
  • Fataskápar, eldhús- og baðinnréttingar eru frá Þúsund fjölum ehf.
  • Eldhústæki eru frá Ormsson.
  • Parket frá Birgisson, flísar frá Álfaborg.

Sjá nánari upplýsingar í handbók hússins frá seljanda sem hægt er að nálgast hjá fasteignasala.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnoðravellir 48
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hnoðravellir 48
Hnoðravellir 48
221 Hafnarfjörður
179.7 m2
Raðhús
524
751 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Viðjugerði 2
V2.jpg
Skoða eignina Viðjugerði 2
Viðjugerði 2
108 Reykjavík
272.5 m2
Einbýlishús
836
734 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Skoða eignina Bæjarhraun 2
Skoða eignina Bæjarhraun 2
Bæjarhraun 2
220 Hafnarfjörður
319 m2
Atvinnuhúsn.
5
423 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Virkisás 8
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Virkisás 8
Virkisás 8
221 Hafnarfjörður
220.7 m2
Einbýlishús
624
634 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin