Notalegur sumarbústaður á einstaklega gróinni og fallegri lóð við Miðengi í Grímsnesi.- Stór og gróin 3.736 m² eignarlóð
- Pallur með heitum potti
- Eftirsótt staðsetning
Birt stærð eignar er 44,3 m² samkv. HMS.Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
Eignin skiptist í eldhús, stofu / borðkrók, tvö svefnherbergi, baðherbergi og svefnloft. Auk þess er geymsluskúr við húsið sem gengið er í utan frá.Nánari lýsing eignarEldhús: Komið er inn í opið og bjart eldhús með góðu skápaplássi. Eldhúsið tengist stofu og borðkrók og nýtist rýmið því vel.
Stofa: Björt og notaleg stofa með borðkrók og parketi á gólfi. Stofa og eldhús mynda saman opið og notalegt alrými.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi eru í húsinu.
Svefnloft: Rúmgott svefnloft með glugga sem býður upp á gott viðbótarsvefnpláss og nýtist vel þegar fjölskylda eða gestir dvelja í húsinu.
Baðherbergi: Notalegt baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug.
Geymsluskúr: Geymsluskúr er staðsettur fyrir aftan húsið og gengið er í hann utan frá. Skúrinn er ekki fullkláraður.
Lóð: Eignin stendur á 3.736 m² eignarlóð sem er einstaklega gróin og skjólgóð, með miklum gróðri og háum trjám sem skapa fallega umgjörð um bústaðinn. Við húsið er pallur með heitum potti.
StaðsetningMiðengi er í Grímsnesi. Samkvæmt upplýsingum seljanda er eignin í um 50 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík, 10–15 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi og 5–10 mínútna akstursfjarlægð frá 9 holu golfvelli. Ekið er inn Vaðlækjarveg þar sem skilti merkt „Vaðlækjarvegur“ er við afleggjarann.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.