DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:18. okt. kl 13:00-13:30
Skráð 10. okt. 2026

Blikaás 50

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
206 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
141.900.000 kr.
Fermetraverð
688.835 kr./m2
Fasteignamat
138.200.000 kr.
Brunabótamat
103.530.000 kr.
Mynd af Glódís Helgadóttir
Glódís Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2001
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2246271
Landnúmer
180410
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt
Raflagnir
síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
sÍðan húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd og svalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Enginn galli sem stm Hraunhamars er kunnugt um. 
Hraunhamar fasteignasala kynnir: Virkilega fallegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum  með innb. bílskúr samtals 206 ferm að stærð, á frábærum stað í Hafnarfirði. Húsið er steinað að utan og því frekar viðhaldslétt. Verönd/pallur með skjólgirðingu í suður.  Snilldar staðsetning er á húsinu, er í botnlanga og í göngufæri við leikskóla,grunnskóla, og náttúruna. 

Í húsinu eru m.a. 4  rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrting, þvottaherbergi, stór og góð stofa/borðstofa, rúmgott eldhús, alrými,hol ofl. Húsið er 175.7 ferm, auk innbyggður bílskúr 30.3 fm samtals stærð því 206 fm.


Svalir snúa í suður og eru um 17 fm.  Húsið er steinað að utan og því viðhaldslítið . Gólfhiti er á allri neðri hæð.  Skjólgóðir sólpallar bæði fyrir framan og aftan hús.  Snjóbræðsla í innkeyrslu. 

Húsið er í lokaðri götu (botnlanga) og mjög barnvænu hverfi og er leikskóli á næstu lóð og skóli í göngufæri.  Næg bílastæði eru við húsið.  Mjög stutt er í falleg útivistarsvæði við Ástjörn, Hvaleyrarvatn, Ásfjall ofl. Sannkallað fjölskyldu hús !

Nánari lýsing:
Öll neðri hæð er flísalögð með fallegum náttúrsteini, nema gestabaðherbergi sem eru flísalagt með ljósum flísum.  Hiti í gólfum á allri hæðinni. 
Gengið inn í forstofu með góðu skápaplássi.  Gestasnyrting er á gangi innaf forstofu og síðan gengið inn í stórt alrými með eldhúsi og bjartri stofu með útgengi á rúmgóða s-vestur verönd. Stigi milli hæða er parketlagður með massívri rauðeik sem er sama gólfefni og er á allri efri hæð utan votrýma þar.  Þar eru 4 rúmgóð svefnherbergi og innaf hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi.   Stórt og gott þvottaherbergi vel innréttað er á hæðinni, ásamt baðherbergi með innréttingum sem er flísalagt með samskonar flísum og neðri hæð.  Útgengi er á rúmgóðar (ca 17fm) svalir af efri hæð (flísalagðar)

Neðri hæð:
Forstofa
: Flísalögð með góðum skápum.
Gestasnyrting: Flísalagt með innréttingu og upphengdu salerni.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð og flísalögð með fallegri hljóðeinangrandi viðareinangrun á vegg.  Útgengi á pall.
Eldhús:Viðarinnrétting.  Gott vinnupláss. Góð tæki. (nýtt spanhelluborð)
Stigi: Parketlagður með rauðeik.

Efri hæð.
Svefnherb I:
Rúmgott með skáp og (stóru geymslurými innaf á teikningu) en er í dag fataherbergi.
Svefnherb II-IV: Rúmgóð og eitt þeirra með skápaplássi.
Baðherbergi:  Flísalagt með upphengdu salerni og góðri innréttingu. Baðkar og sturtuklefi, handklæðaofn. Gluggi.
Þvottahús: Stórt og gott með rúmgóðri  innréttingu. Flísalagt. Handklæðaofn. Gluggi.

Garðaðstaða er flott með pöllum, skjólgirðingum og hellulögðum veröndum. Fallegur trjágróður en ekkert gras.
Bílaplan fyrir framan er hellulagt með hita,

Bílskúr (30 fm) er vel innréttaður með opnara.


Stutt er í alla þjónustu, stofnbrautir og útivistarsvæði.

Eignin Blikaás 50 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 224-6271, birt stærð 206.0 fm.

Þetta er fullbúin góð eign á þessum frábæra stað sem vert er að skoða frekar !


Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/06/2024124.400.000 kr.130.000.000 kr.206 m2631.067 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2001
30.3 m2
Fasteignanúmer
2246271
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.630.000 kr.

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kirkjubrekka 13
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Kirkjubrekka 13
Kirkjubrekka 13
225 Garðabær
219 m2
Parhús
513
776 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 31
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Akurgerði 31
Akurgerði 31
108 Reykjavík
209,9 m2
Parhús
624
738 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D2-705
Heitur pottur
Opið hús:11. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D2-705
108 Reykjavík
226,5 m2
Fjölbýlishús
322
1400 þ.kr./m2
317.200.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D2-802
Heitur pottur
Opið hús:11. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D2-802
108 Reykjavík
203 m2
Fjölbýlishús
433
1428 þ.kr./m2
289.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin