Virkilega fallegt og mikið endunýjað parhús að Akurgerði 31, 108 Reykjavík. Húsið er byggt árið 1956 og er skráð 191,8 m², búið er að grafa út rými á neðri hæðinni sem er í fullri nýtingu og því heildar nýting á eigninni um 210 fm. Húsið er á þremur hæðum ásamt bílskúr. Tvö nýlega uppgerð baðherbergi ásamt gestasalerni. Fjögur svefnherbergi, sér þvottahús, nýlega uppgert eldhús, borðstofa, stofa og sjónvarpshol. Mögulegt er að útbúa auka íbúð á jarðhæð. Mjög fallegur garður til suðurs með palli, heitum potti og 15 fm sérstæðum geymsluskúr. Húsið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár og er í góðu ásigkomulagi. Búið að skipta út öllum vatns og fráveitulögnum.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isNánari lýsing eignar:
Inngangur inn í miðhæð eignarinnar. Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Rúmgott nýlegt eldhús með góðu vinnuplássi, steinn á borðum, innbyggður ísskápur, innbyggður frystir og innbyggð uppþvottavél. Bosch eldavél, ofn og örbylgjuofn. Falleg vifta fyrir ofan eldavél. Borðstofa með frönskum gluggum og útgengi í suðurgarð með palli og heitum potti. Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Þvottahús og gestasalerni á miðhæð. Nýlega búið að leggja gólfhita í alla miðhæðina.
Gengið niður teppalagðan stiga á jarðhæð. Önnur inngönguhurð framan við hús sem hægt væri að nýta sem sér inngang á jarðhæð og útbúa þar auka íbúð. Á jarðhæð eru tvö rúmgóð herbergi með gluggum, Nýlega uppgert baðherbergi með baðkari og stórum sturtuklefa með innbyggðum blöndunartækjum. Gólfhiti er á allri jarðhæðinni, nýlegar lagnir. Gott sjónvarpshol. Tæknirými með nýrri rafmagnstöflu, hitagrind og stýringu fyrir heitan pott.
Gengið er upp teppalagðan stiga á efri hæð. Tvö rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi og útgengi út á svalir. Uppgert baðherbergi með sturtuklefa, upphendu salerni og handklæðaofni. Köld geymsla yfir allri efri hæðinni. Nýlegir ofnar og lagnir á efri hæð.
Bílskúr með sér rafmagnstöflu, geymslulofti og vinnuaðstöðu í stúkuðu rými.
Suðurgarður með 90–100 m² palli úr plastefni. Heitur pottur með harðviðarklæðningu og geymslurými. Gróðurker fyrir ræktun. Ný 15 m² geymsla í efri garði.
Endurbætur síðustu ára: Eldhús, gestasalerni og bæði baðherbergi endurnýjuð að öllu leiti. Nýjar heita- og kaldavatnslagnir, ofnalagnir og gólfhiti.
Dren og nýjar frárennslislagnir. Rafmagn í kjallara endurnýjað, ný rafmagnstafla og lagnagrind. Nýjir gluggar í kjallara og að hluta á miðhæð. Þak ca. 12 ára, málað 2024. Búið er að tengja ryksugukerfi í eignina.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.