Fasteignaleitin
Opið hús:06. des. kl 14:00-14:30
Skráð 1. des. 2025
Deila eign
Deila

Smyrilshlíð 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
115.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
950.692 kr./m2
Fasteignamat
89.850.000 kr.
Brunabótamat
75.710.000 kr.
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2512591
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
8
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
*** Smyrilshlíð 12 (íb. 108) - 102 Reykjavík ***

Opið hús:
Eignin verður sýnd laugardaginn  6. desember 2025 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

PRIMA Fasteignsala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna:
Mjög svo fallega og vel staðsetta 4. herbergja íbúð á fyrstu hæð í lyftublokk - samtals 115.6 fm með rúmgóðri verönd. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara (B-147).
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu sem og borðstofu með frönskum svölum. Hjónaherbergi og 2 barnaherbergi. Útgangur út á rúmgóða verönd úr einu barnaherberginu. Baðherbergi, þvottahús og sér 13.3 fm geymslu í sameign. Barnvænn inngarður með leiktækjum sem er aðgengilegur af verönd íbúðar.


SJÁ MYNBAND AF EIGN / WALKTHROUGH VIDEO
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT



Nánari lýsing:
Komið inn í anddyri - Flæðandi parket á gólfi. Hvítur fataskápur.
Eldhús – Í opnu rými er eldhús með vandaðri svartri Nobilia innréttingu frá GKS, ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, og span helluborð. Góð vinnueyja sem hægt er að sitja við. Blásturbakaraofn eru frá AEG. Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.
Stofa/borðstofa - Í opnu rými er stofa og borðstofa, úr stofu er hurð út á franskar svalir.
Hjónaherbergi I – Rúmgott herbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II - Rúmgott með hvítum fataskáp. Parket á gólfi. Útgangur út á rúmgóða verönd með greiðan aðgang af inngarði með leiktækjum. 
Svefnherbergi III - Parket á gólfi. Hvítur fataskápur. 
Baðherbergi – Baðherbergi er stílhreint, flísalagt í hólf og gólf. Vönduð innrétting með skúffum. Walk-in sturta
Þvottahús – Sér þvottahús er innan íbúðar. Innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Geymsla - Sérgeymsla íbúðar er í sameign, geymsla er 13,3 fm. 
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara (B-147). Sameiginlegt bílastæðahús er fyrir heildar húsið. - Upphituð (frostfrí) með loftræstingu.

Sameign: Sameign er snyrtileg með rafmagnsstýrðu aðgengi í flest rými. Í sameign eru sérmerktar geymslur íbúða ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Fallegur barnvænn inngarður með leiktækjum fylgir húsinu. 

Staðsetning er í nálægð við útivistarsvæðið í Öskjuhlíð og Nauthólsvík og í göngufæri við bæði Háskóla Reykjavíkur og Háskóla Íslands. Golfhermir er kominn í hverfið. Stutt er í Landspítala-háskólasjúkrahús og íþróttaaðstöðuna að Hlíðarenda. Matvöruverslun er í götunni og stutt í verslunarkjarna Kringlunnar. Miðbær Reykjavíkur er í göngufæri og því stutt í veitingastaði og menningu svo sem listasöfn og leikhús.


Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is

__________________________________________________________________________________________

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/03/202231.550.000 kr.83.900.000 kr.115.6 m2725.778 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2022
Fasteignanúmer
2512591
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
47
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.760.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 10
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 10
Smyrilshlíð 10
102 Reykjavík
114.9 m2
Fjölbýlishús
413
939 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (511)
Bílastæði
Opið hús:02. des. kl 16:30-17:00
Fálkahlíð 5 (511)
102 Reykjavík
107.5 m2
Fjölbýlishús
312
1022 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5, (511)
Bílastæði
Fálkahlíð 5, (511)
102 Reykjavík
107.5 m2
Fjölbýlishús
312
1022 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 3
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Fálkahlíð 3
Fálkahlíð 3
102 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
413
831 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin