Valhöll fasteignasala kynnir: fallega, bjarta og vel skipulögð 3-4ra herbergja enda íbúð ásamt bílskúr á vinsælum stað í Garðabæ. Íbúðin er á 2. hæð hæð með fallegu útsýni. Eignin er skráð 118,9 m2 og samanstendur af anddyri, holi, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu í sameign um 8fm. Þar er einnig sameiginleg hjólageymsla. 18 m2 bílskúr fylgir eigninni. Góðar suðaustur svalir eru beint út frá stofu. Húsið var múrviðgert og málað 2021. Nýtt parket er á íbúðinni og baherbergi var uppfært fyrir um 6 árum. Í dag er íbúðin með tveimur svefnherbergjum en fordæmi eru fyrir því að bæta við herbergi við enda stofu.
Bókið skoðun hjá Óskari H. Bjarnasen lögm. og lögg. fasteignasala í gegnum netfangið oskar@valholl.is eða í síma 691-1931.
Eignin er skráð skv. HMS alls 118,9 fm, þar af er bílskúr 18 m2.
Nánari lýsing:
Anddyri: Frá sameign er gengið inn forstofu með skóskápum. Flísar á gólfi. Forstofuskápur inni á gangi.
Eldhús: Falleg en upprunaleg innrétting. Möguleiki að opna eldhús betur inn í stofu/borðstofu. Flísar á gólfi.
Þottahús: Þvottahús er inn af baðherbergi. Góð innrétting með miklu skápaplássi, vinnuborði og ræstivaski. Gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Stofa / borðstofa: Stór og björt með gluggum á þrjá vegu. Útgengi er út á góðar suðaustur svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Bjart og gott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Bjart og rúmgott með góðri innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, Flísar í hólf og gólf.
Bílskúr: Góður skúr með hita, heitu og köldu vatni, vinnuborði og hurðaopnara. Flísar á gólfi.
Geymsla: Í sameign er 7,9 fm geymsla.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirstóttum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.