Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: virkilega fallegt, vel skipulagt 158,7 fm einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr á frábærum stað við Lóuflöt 4, Hvanneyri, Borgarbyggð. Hús í "sveitasælunni" með 812 fm lóð.
Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 117,8 fm auk 40,9 fm bílskúrs. Bókið einkaskoðun
Staðsett í ört stækkandi þéttbýliskjarna á Hvanneyri með mikið útsýni og mikla nálgun við náttúruna.
Um 285 manns* búa á Hvanneyri allt árið en bæjarbúar fara yfir 600+ þegar Landbúnaðarháskólinn er í gangi.
Leikskólinn Andabær og Grunnskól fyrir 1-5 bekk eru í hverfinu. Stutt á strætisvagnastöð.
Á Hvanneyri gerast góðir hlutir, börnin leika sér úti, nágrannar spjalla saman. Í göngu ferð um bæinn getur þú rekist á hesta, beljur, hænur, hunda og ketti. Einstakt fuglalíf er á Hvanneyri og glæsileg náttúra. Yndislegt sveitalíf allt í kring.
Nánari lýsing. Hús byggt 2022
Forstofan er rúmgóð með flísalögðu gólfi og hengi
Stofa og Eldhús mynda eitt stórt alrými.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á timburverönd með skjólveggjum.
Eldhús með fallegr hvítri innréttingu með, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð, innbyggður ísskápur parket á gólfi
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, "walk-in sturta", falleg innrétting, upphengt salerni og dyr út á stóra timburverönd með heitum potti.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi með góðum skápum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fatakáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Möguleiki að bæta við fjórða herberginu í enda bílskúrs.
Þvottahús er innaf svefnherbergisgangi með flísalögðu gólfi og góðri innréttingu með skolvaski og vélum í vinnuhæð.
Bílskúr með heitt og kalt vatn. gönguhurð, geymsluloft er yfir bílskúr. (Möguleiki að bæta við herbergi í endabílskúrs)
Fljótandi parket á herbergjum og alrými, gólfhiti í öllu húsinu, stétt að framan kynt með affalli.
Lóuflöt er á Hvanneyri í ört vaxandi byggðarkjarna í Borgarbyggð, Hvanneyri er staðsett í ca. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Borgarnesi.
Á Hvanneyri er stór og fallegur leikskóli sem gengur undir nafninu Andabær og eru í honum þrjár deildir, Goðheimar, Hulduheimar og Álfheimar. Grunnskóli er á Hvanneyri og fer fram kennsla fyrir 1-5 bekk en 6-10 bekk fer fram á Kleppjárnsreykjaskóla og er skólabíl fyrir þá nemendur. Menntaskóli er einungis um 10mín frá en hann er staðsettur í Borgarnesi. Landbúnaðarháskóli Íslands er lítill háskóli sem einnig markar honum sérstöðu.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.