REMAX / Erling Proppé & Ágúst Ingi Davíðsson / kynna: Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð á stórri lóð við Njarðvíkurbraut 5, 260 Reykjanesbær. - Mikið endurnýjað sl. ár, sjá upptalningu neðar.- ca. 4.8m lofthæð í mæni í stofu
- Gólfhiti
- Mjög stór lóðAllar nánari upplýsingar veita:
Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is
Ágúst Ingi Davíðsson lgf // 787-8817 // agust@remax.isHúsið er 4ra herbergja á einni hæð og skiptist í: 2 baðherbergi, 3 svefnherbergi, eldhús & borðstofu, þvottahús, bílskúr þar sem búið er að setja upp baðherbergi með sturtu og auðvelt að setja upp herbergi.
Eignin er byggð úr timbri á steyptum sökkli á einni hæð, 4 herbergja, birt stærð hússins samkvæmt FMR er 167,2 fm þar af er bílskúr 45,9 fm.Nánari lýsing:Forstofa: góður fataskápur og flísar á gólfi.
Alrými/borðstofa/stofa: Opið og bjart rými með mikilli lofthæð, með útgengi út á stóra verönd og stóran garð þar sem er heitur pottur og útigeymsla.
Eldhús: Gott skápa og borðpláss ásamt fallegri eyju, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp sem getur fylgt gegn samkomulagi, bakaraofn og span/gas helluborð.
Herbergi: Rúmgott með góðum fataskáp.
Herbergi: Rúmgott með góðum fataskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, flísalagt hólf í gólf, walk in sturta með reyktu gleri og innfelldum blöndunartækjum, baklýstur spegill og góð innrétting.
Þvottahús: Er í enda á svefnherbergisgangi, góð innrétting og snyrtilegt.
Bílskúr: Mjög stór (45.9m2) og góður bílskúr með flísum á gólfi, búið er að stúka af og setja upp snyrtilegt baðherbergi í enda bílskúrs, auðveldlega hægt að stúka af gott herbergi með salernisaðstöðu eða breyta í íbúð.
Geymsluloft: Gott geymsluloft yfir ca. 2/3 af húsinu, innangengt úr bílskúr.
Framkvæmdir sl. ára skv. seljanda: - 2016 var pallur stækkaður og settur heitur pottur. Eldhús flísalagt og ný eldhúsinnrétting.
- 2017 var bíslag gert fyrir utan útidyr og þakkanntur endurnýjaður.
- 2018 voru lagðar nýjar flísar í forstofu og hjá svalahurð og parket á rest af húsi. Gridverk sett að framan
- 2019 auka baðherbergi í bílskúr. Lóð jöfnuð bakvið hús. Lóð hellulögð framan við hús.
- 2020 var pallur stækkaður uppí 80 fm, og skjólveggur settur meðfram lóðamörkum
- 2021 ný útidyra- og svalahurð.
- 2022 Baðherbergi endurnýjað.
- 2023 3 svefnerbergi, gangur, þvottahús veggjum skipt út, panell tekinn og gips sett í staðin. Ný innrétting í þvottahús. Nýjar innihurðar í öll rými.
- 2024 settur nýr hleri fyrir háaloft.
- 2025 skipt um 2 glugga í stofu og 1 í eldhúsi.
Nánari upplýsingar veita:
Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is
Ágúst Ingi Davíðsson lgf // 787-8817 // agust@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.