Borg fasteignasala og María Mjöll kynna einbýlishús á tveimur hæðum með fallegu útsýni til sjávar og fjalla, sérstandandi geymslu og skjólríkum palli á góðum stað í hjarta Stykkishólms.
Íbúðarhúsið 129,3 fm ásamt 24,6 fm sérstandandi geymslu. Húsið er byggt árið 1944. Eignin hefur fengið töluverðar endurbætur á undanförnum árum og býður upp á björt og notaleg rými, þrjú svefnherbergi, fallegt útsýni og fjölbreytta nýtingarmöguleika. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, höfnina og iðandi mannlíf í Stykkishólmi.
** Bókið skoðun hjá Maríu Mjöll í síma 866-3934**Nánari lýsing:Efri hæð skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa: Komið er inn í snyrtilega forstofu með nýlegum flísum á gólfi.
Hol: Frá forstofu er gengið inn í hol sem tengir saman rými efri hæðar. Flotað gólf er á holi og þaðan er gengið niður á neðri hæð hússins.
Stofa: Björt og notaleg stofa með stórum gluggum sem veita góða náttúrulega birtu og fallegt útsýni til sjávar og fjalla. Flotað gólf er í stofu og fallegar rósettur og gerefti setja skemmtilegan svip á rýmið og falla vel að karakter hússins.
Eldhús: Eldhús með dökkri innréttingu frá árinu 2021, rúmgóðum skúffum og góðu skápaplássi. Innbyggður bakaraofn í vinnuhæð með sjálfhreinsibúnaði og gufustillingu. Flísalögð borðplata og flotað gólf. Gluggi er í eldhúsi.
Svefnherbergi: Svefnherbergi með parketi á gólfi og tvöföldum fataskáp og glugga.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, salerni, handklæðaofni og veggskápum.
Gluggi er á baðherbergi.
Neðri hæð skiptist í forstofu með sérinngangi, gang, tvö svefnherbergi, fjölnotarými og rúmgott þvottahús.
Forstofa: Sérinngangur með nýlegri útihurð, steyptu gólfi og vegghillum.
Gangur: Nýlegar flísar á gólfi og rúmgóður fjórfaldur fataskápur.
Svefnherbergi II: Rúmgott og bjart herbergi með parketi á gólfi og tveimur gluggum.
Svefnherbergi III: Herbergi með parketi á gólfi og glugga.
Hol/fjölnotarými: Rými undir stiga sem nýtist vel sem lestrarhorn, leiksvæði eða vinnuaðstaða. Þar eru einnig rafmagnstafla og inntaksgrein hússins, gott aðgengi er að því, nýlegar flísar á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með nýlegum flísum á gólfi. Unnið hefur verið að endurbótum á rýminu og eru tengingar til staðar fyrir salerni og sturtu. Gert er ráð fyrir upphengdu salerni og rúmgóðri sturtuaðstöðu. Megnið af efni og tækjum til að ljúka framkvæmdum hefur verið keypt og getur fylgt eigninni samkvæmt nánara samkomulagi.
Geymsla: Sérstandandi 24,6 fm geymsla, byggð árið 1950, sem hefur verið endurnýjuð og er einangruð og upphituð með rafmagni. Þar er bæði geymslupláss og fjölnota tómstundarými sem býður upp á ýmsa möguleika, til dæmis fyrir áhugamál, vinnuaðstöðu eða tónlist.
Lóð og umhverfi: Við húsið er garður með nýlegum sólpalli sem býður upp á notalega útivistaraðstöðu. Möguleiki er á að koma fyrir heitum potti á pallinum. Bílastæði eru fyrir tvo til þrjá bíla.
Endurbætur og viðhald:Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum, meðal annars á lögnum, rafmagni, gluggum, innréttingum og innanhússfrágangi.
Ítarlegur listi yfir framkvæmdir og endurbætur er aðgengilegur hjá fasteignasala.
Staðsetning:Skólastígur 13 er vel staðsettur í hjarta Stykkishólms þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og afþreyingu. Í um 10 mínútna göngufæri eru grunnskóli, sundlaug með líkamsrækt og gufubaði ásamt verslunarkjarna þar sem meðal annars er að finna matvöruverslun, apótek og aðra þjónustu.
Höfnin, kaffihús, bakarí og veitingastaðir eru í um 5 mínútna göngufæri og stutt er á golfvöll bæjarins og í hesthúsahverfið.
Frá húsinu er fallegt útsýni til sjávar og fjalla.
Annað:Ljósleiðaratenging er í húsinu.
Geymsluloft er yfir efri hæð.
Bílastæði fyrir tvo til þrjá bíla.
Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Eignin býður upp á áhugaverða möguleika til framtíðar, meðal annars til að kanna skiptingu í tvær íbúðareiningar, að fengnum tilskildum leyfum.
Hér er um að ræða sjarmerandi eign með mikla möguleika, fallegt útsýni og góða staðsetningu í einu fallegasta sjávarþorpi landsins.
Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.isForsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.