Fasteignaleitin
Opið hús:24. nóv. kl 13:45-14:15
Skráð 21. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Jöfursbás 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
74.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.400.000 kr.
Fermetraverð
1.000.000 kr./m2
Fasteignamat
61.900.000 kr.
Brunabótamat
51.190.000 kr.
SA
Stefán Antonsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2518569
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Svalir
Austur
Upphitun
Nýlegt
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
LAUS TIL AFHENDINGAR !!
Fasteignasalan Bær og Stefán Antonsson kynna í einkasölu:

Jöfursbás 7B, Reykjavík - íbúð 0404.  2ja herbergja horníbúð íbúð 74,4fm. á fjórðu hæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 6,3fm. (merkt 0005) í kjallara.  Bílastæði í bílakjallara merkt B047 fylgir íbúðinni.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með góðu svefnherbergi.  Gólfhiti í allri íbúðinni. Svalir til austurs út frá stofu.    Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm.  Glæsilegt útsýni frá stofu til sjávar. Íbúðirnar í . Nánari upplýsingar á gufunesid.is Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.
Lýsing íbúðar:
Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp 
Eldhús með eyju opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts. Eyja með helluborði.  Innrétting er vönduð með Crystal Diamond Polished Quartz stein á borðplötum.
Stofa með góðum glugga og útgengt á svalir til austurs með fallegu sjávarútsýni.
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja.  Vönduð innrétting með Quartz borðplötu.  Tengt fyrir þvottavél og þurrkara innbyggt í innréttingu.
Svefnherbergi  er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins Hjóla-og vagnageymsla í kjallara Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar Hverfið: Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi. Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. NÁNARI LÝSING: HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.  HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði. ÍBÚÐIR:    Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led Veggofn. Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe. Vandað harðparket á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON.  BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir og góð geymsla í sameign.  SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu.  Athugið að búið er að samþykkja að skipta um skjólklæðninu á svölum og verður sett gler sem greitt er af húsfélaginu.

Nánari upplýsingar veita Stefán Antonsson , í síma 6607761, tölvupóstur stefan@fasteignasalan.is  Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Bær bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. Stimilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl.  Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.  
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/12/202355.950.000 kr.68.900.000 kr.74.4 m2926.075 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2518569
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
47
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.740.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vættaborgir 96
Skoða eignina Vættaborgir 96
Vættaborgir 96
112 Reykjavík
90.6 m2
Parhús
312
827 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Súðarvogur 9
Bílastæði
Skoða eignina Súðarvogur 9
Súðarvogur 9
104 Reykjavík
77.3 m2
Fjölbýlishús
312
969 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Opið hús:24. nóv. kl 15:30-16:00
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
72.5 m2
Fjölbýlishús
312
1019 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Opið hús:24. nóv. kl 15:30-16:00
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
67 m2
Fjölbýlishús
211
1118 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin