Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5, 102 Reykjavík - Íbúð 512.
Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu jafnvel tilboð beint á sölusíðu eignarinnar í eCASA.
Glæsileg og rúmgóð 4ja-5 herbergja íbúð á 5. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Íbúðin er lýst á 3 vegu og er með aukna lofthæð. Birt stærð er 119,3 fm þar af 12 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á suður svalir með útsýni í vestur, gang, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.
Nánari lýsing: Í opnu og rúmgóðu anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Útgengt er á suðursvalir með útsýni til vesturs yfir Vatnsmýrina. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Þrjú svefnherbergi, þar af tvö með fataskáp, en hægt væri að fækka um eitt herbergi og stækka þannig alrými sem því nemur. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu og gráum steinflísum á gólfi. Vaskur í þvottaherbergi. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0069. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru sér loftræsikerfi og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
102 | 115.2 | 148,9 | ||
102 | 126.7 | 156,9 | ||
102 | 144.7 | 144,9 | ||
102 | 144.7 | 144,9 | ||
102 | 104.9 | 139,9 |