RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu:Einstaklega glæsileg og björt íbúð á 2. hæð að Tryggvagötu 13. Íbúðin stendur í hjarta miðborgarinnar með fallegt útsýni yfir Reykjavíkurhöfn. Eignin skiptist í anddyri, stofu, borðstofu og eldhús í alrými, opið svefnherbergi með walk-in skáp og baðherbergi, gestasalerni og þvottahús. Suðursvalir sem gengið er út á frá svefnherbergi. Sér geymsla í kjallara. Eikarparket er á öllum gólfum að undanskildum votrýmum. Eldhústæki frá AEG. Hiti er í öllum gólfum. Innréttingar frá HTH. Snertilaust lyklaaðgengi að íbúð, sameignarrými og útihurðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing:Anddyri með góðum fataskáp frá HTH og parketi á gólfi.
Eldhús er samliggjandi stofu, stór eyja með spanhelluborði, viðar borðplötum, innréttingum frá HTH, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi.
Salerni hvít innrétting, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Þvottahús með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi bjart með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt á suðursvalir úr herberginu.
Fataherbergi er inn af hjónaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er innan af fataherbergi með upphengdu salerni, baðkari og flísum á gólfi.
Eignin er í vönduðu lyftuhúsi sem var byggt 2017 og eignin öll hönnuð með hliðsjón af miklum gæðum, þægindum og glæsileika. Mikið er lagt upp úr hljóðeinangrun í húsinu, jafnt gagnvart hljóðum utanhúss sem og milli hæða og íbúða. Aukin lofthæð. Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins.
Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er að sameign og íbúðum. Glæsileg sameign, með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum. Dagnotkunar hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og langtíma hjóla og vagnageymsla í kjallara.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk