BYR fasteignasala kynnir í einkasölu EYRAVEGUR 21 , 800 Selfoss. Fjögurra til fimm herbergja íbúð á efstu hæð með útsýni.
Húsið er staðsett miðsvæðið í blandaðri byggð á Selfossi, stutt í miðbæinn á Selfossi sem og alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 1972, íbúð 112.4 m² samkvæmt HMS.
Skipulag íbúðar: anddyri/stigi,
eldhús, stofa og borðstofa, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og þvottahús/geymsla.
Í sameign: Stigahús og inntaksrými.
Nánari lýsing: Í sameign er stigahús, gengið inn á bakhlið, sameiginlegur stigagangur liggur uppá aðra hæð, þar er inngangur íbúðar, gengið upp eina hæð.
Anddyri íbúðar/stigi og stigaskör, teppi á gólfi, þaðan er gengið útá svalir til suðurs, þaðan er einnig innangengt á baðherbergi.
Gangur liggur þar fyrir innan að öðrum rýmum eignarinnar, harðparket á gólfi. Gangi er að hluta til skipt upp (til aðgreina útleigueiningu).
Eldhús, harðparket á gólfi, innrétting með helluborði og ofni, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (getur mögulega fylgt).
Stofa og borðstofa (þriðja herbergið), opið rými var áður þrjú rými (stofa, svefnherbergi og geymsla),
hefur verið nýtt sem gistirými til útleigu til ferðamanna. Svenherbergi I (stærra herbergið) innrétting, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II (minna herbergið) tvöfaldur fataskápur, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, flísar á gólfi, upphengt salerni, vaskinnrétting og sturta, flísar á veggjum sturtu, gluggi.
Þvottahús/geymsla eru saman í rými, hillur.
Eyravegur 21 steypt þriggja hæða hús þak er tvíhalla. Á jarðhæð er atvinnuhúsnæði á annarri og þriðju hæð eru íbúðir.
Á hæðinni fyrir neðan hafa verið útbúnar tvær íbúðareiningar úr sambærulegu húsnæði.
Lóð er sameiginleg, bílastæði og inngangur efri hæða eru á baklóð. Möl er í bílastæðum og innkeyrslu bílastæði eru sameiginleg. Í sameign á jarðhæð er inntaksrými.
Lóðin er 1159,0 m² leigulóð í eigu Sveitarfélagsins Árborgar.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 226-8312.Stærð: Íbúð 112.4 m².
Brunabótamat: 52.300.000 kr.
Fasteignamat: 45.050.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2025: 47.550.000 kr
Byggingarár: 1972.
Byggingarefni: Steypa.