
Heima fasteignasala kynnir Haukahlíð 10 – Íbúð 134.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending áætluð í Janúar 2027, með fyrirvara um öryggisúttekt.
Sameignarkaup — þú fjármagnar aðeins 75% af kaupverði: 63.675.000
Sameignarsamningur er undirritaður samhliða kaupsamningi.
Fáðu nánari upplýsingar á sölusíðu eignarinnar., þar sem þú færð aðgang að söluyfirliti og öðrum skjölum með rafrænum skilríkjum og getur gert tilboð beint. Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 583 2000. Hafðu samband og bókaðu skoðun.
3ja herbergja íbúð á 1. hæð. Íbúðin snýr í austur. Birt stærð er 81,3 fm þar af 8,5 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með sérsmíðuðum innréttingum, raftækjum, blöndunartækjum og gólfefni. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Hlíð 1.
Nánari lýsing: Gengið er inn í alrými með eldhúsi og stofu, gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir. Fataskápar við inngang. Eldhúsinnrétting með hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa, blöndunartæki úr burstuðu kopar-/gulllituðu stáli, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Hjónaherbergi með fataskápum og svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með „walk-in“ sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð, speglaskápur og blöndunartæki úr svörtu möttu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla í kjallara merkt 170 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingarfyrirkomulagi þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Um Hlíðarhorn
Hlíðarhorn er 3–5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 íbúðir, 2–5 herbergja. Hverri íbúð fylgja svalir, þaksvalir eða sérafnotareitur í innri garði, og íbúðirnar eru hannaðar með tilliti til náttúrulegrar birtu og nýtingar fermetra. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og sérstök áhersla er lögð á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd álklæðningum í mismunandi litum ásamt við, með gluggum úr ál/við.
Hlíðarhorn er í 102 Reykjavík, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta við fætur Öskjuhlíðar. Þjónusta, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða og stórir vinnustaðir eru í göngu- og hjólafæri.
Bílakjallari
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er samnýttur samkvæmt deiliskipulagi. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnum íbúðum hefur verið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum; kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallarans samhliða kaupum.
Nánari upplýsingar
Á www.hlidarhorn.is má sjá allar íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni. Skilalýsing seljanda ásamt upplýsingum um hönnun og byggingu er einnig á heimasíðu verkefnisins.
Athugið
Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt, 0,3% af endanlegu brunabótamati.
Auk kaupverðs greiðir kaupandi:
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 81,5 | 79,9 | ||
101 | 102,7 | 79 | ||
105 | 211,2 | 159,9 | ||
225 | 96,9 | 84,9 | ||
221 | 73,6 | 62,9 | ||
112 | 97,7 | 81,9 |