DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Hólakot Jörð

Jörð/LóðVestfirðir/Þingeyri-471
Verð
70.000.000 kr.
Fasteignanúmer
23367268
Húsgerð
Jörð/Lóð

HÓLAKOT – JARÐARLÝSING
Almennt um jörðina
Jörðin Hólakot (landnúmer L205506) í Núpsdal í Dýrafirði er 52,4 hektarar að stærð. Hún er gamalt lögbýli en hefur verið í eyði síðan árið 1944.
Jörðin var nýtt til sauðfjárbúskapar allt fram til ársins 2008 af eigendum Klukkulands, sem er næsta jörð innar í Núpsdal, ásamt öðrum nágrannabændum.
Árið 1992 var stofnuð sumarhúsalóð á bæjarhól jarðarinnar. Lóðarhafi flutti þangað gamalt timburhús sem sett var á steintóft gamla íbúðarhússins. Húsið skemmdist síðar í óveðri og eyðilagðist á árunum á eftir vegna hirðuleysis, þar til núverandi eigendur leystu það til sín og fjarlægðu ásamt tóftum gamla íbúðarhússins.
Tún jarðarinnar eru um 1,7 hektarar að stærð og hafa ekki verið slegin í um áratug.

Skógrækt
Árið 2008 gerðu eigendur Klukkulands og Hólakots skógræktarsamning við Skjólskóga á Vestfjörðum (nú Land og skógur) með það að markmiði að rækta nytjaskóg á jörðunum.
Síðar var samningnum skipt eftir landamerkjum jarðanna og komu 34,1 hektarar samningslands í hlut Hólakots.
Þegar skógrækt hófst vorið 2008 voru jarðirnar girtar sameiginlegri girðingu:
meðfram Núpsá
og við landamerki í suðri upp með rönd Klukkulandsfjalls
Árið 2026 er búfjárbeit aflögð vestan Núpsár og girðingin meðfram ánni hefur verið fjarlægð. Enn þarf þó að viðhalda girðingu sem liggur með landamerkjum Minni-Garðs hátt upp í Klukkulandsfjall.
Álag sauðfjár frá þeirri átt hefur þó minnkað verulega síðustu ár vegna fækkunar sauðfjár á svæðinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali, asi@hofdi.is Gsm 8953000.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vaðlar
Skoða eignina Vaðlar
Vaðlar
426 Flateyri
1,517.6 m2
Jörð/Lóð
1128
165 þ.kr./m2
250.000.000 kr.
Skoða eignina Klettahraun 12
Skoða eignina Klettahraun 12
Klettahraun 12
851 Hella
Jörð/Lóð
6.500.000 kr.
Skoða eignina Hestás Ásahreppi
Bílskúr
Heitur pottur
Hestás Ásahreppi
851 Hella
190.7 m2
Jörð/Lóð
43
655 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarhóll 0
Skoða eignina Arnarhóll 0
Arnarhóll 0
803 Selfoss
397,091.4 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
219.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin