Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Skipasund 80, 104 Reykjavík.
Sjö herbergja íbúð í tvíbýli á þremur hæðum ásamt bílskúr. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipasund 80, íbúð á hæð 146,70m² og bílskúr 38,20 m² samtals 184,90m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: anddyri, hol, stofa, eldhús, fimm herbergi, salerni og baðherbergi.
Í sameign: í kjallara er sér geymsla og sameiginlegt þvottahús.
Hæð I: anddyri, hol, stofa, eldhús, svalir, herbergi og salerni.
Frá anddyri er komið í hol sem tengir saman önnur rými. Eldhús er til hægri, salerni til vinstri og stofa til móts við anddyri. Stigi frá holi upp á aðra hæð og við hlið hans er gengið niður í kjallara.
Anddyri, tvöfaldur fataskápur og parket.
Stofa, við hlið herbergis, parket á gólfi.
Eldhús, brún innrétting með efri skápum, stálvask, eldavél með spanhellum og uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Útgengt er út á svalir og parket á gólfi eldhúss.
Herbergi I, parket á gólfi, var áður borðstofa og auðvelt að breyta til baka.
Salerni, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, standandi salerni, gluggi.
Hæð II: fimm herbergi, gangur, svalir og baðherbergi.
Gangur tengir rými saman. Gegnt stiga er hjónaherbergi, til hægri baðherbergi og vinstri önnur herbergi.
Herbergi II, hjónaherbergi, þrefaldur fataskápur, útgengt út á svalir.
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi IV, parket.
Herbergi V, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi VI, tvöfaldur fataskápur, merkt geymsla á teikningu.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtufestingu, vaskinnrétting og standandi salerni.
Gólfefni: anddyri, hol, stofa, eldhús og herbergi I, II, III, IV og VI með parket á gólfi, dúkur á herbergi V, salerni og baðherbergi flísalagt, geymsla og þvottahús með máluðu gólfi.
Húsið var múrviðgert og málað sumar 2025.
Samkvæmt eignaskiptasamningi:
Birt stærð íbúðar 146,7m² Birt stærð bílgeymslu 38,2m² 75,9m² íbúð á 1. hæð hússins sem er anddyri, herbergi, hol/stigagangur, eldhús og salerni ásamt 67,4m² á 2. hæð sem er 4 herbergj, geymsla, bað- og gangur merkt á teikningu 0201 og 6,3m² geymslu í kjallara merkt á teikningu 0003 og hlutfallslegri eign í matshluta 01 og lóð. Þá fylgir íbúðinni 38,2m² bílgeymsla í matshluta 02 ásamt hlutfallslegri eign í matshluta 02 og lóð. Íbúðinni fylgja 6,3m² og 5,4m² svalir á 1. og 2. hæð.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
11/12/2015 | 42.100.000 kr. | 52.300.000 kr. | 184.9 m2 | 282.855 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
104 | 184.4 | 132,9 | ||
104 | 170.7 | 144,9 | ||
104 | 170.7 | 144,9 | ||
104 | 180.7 | 129,9 | ||
104 | 149 | 126,9 |