RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Mýrarland 5, Selfossi. fnr. 236-5410Eignin er skráð 94,9 fm og parhús úr timbri og er klætt með lituðu bárujárni og er skráð byggingarár 2017. Fallegt hús í enda botnlangagötu. Gott er að sjá skipulag hússins á teikningu sem er þar sem ljósmyndirnar eru af eigninni. Gólfhiti er í húsinu. Aukin lofthæð sem er 2.65m.
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Grófjafnað plan fyrir framan húsið.
Forstofa: Flísar á gólfi. Fataskápur.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útengt á góðan sólpall með skjólveggjum og heitum potti sem snýr til suð-vesturs.
Eldhús: Parket á gólfi. Innrétting með hvítum og brúnum skápum. Bakstursofn í vinnuhæð. Helluborð með viftu yfir.
Baðherbergi: Flísar á gólfi sem og á veggjum við sturtu. Inngöngu sturta með glerþili. Upphengt salerni. Hvít innrétting með handlaug.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Svefnherbergi: Eru þrjú talsins og er parket á gólfi þeirra allra.
Lóð: Grófjafnað fyrir framan húsið. Á baklóð er pallur með skjólveggjum og heitum potti og tyrft gras þar fyrir aftan.
Mýrarland 5 er eintstaklega falleg og hlýleg eign með þremur svefnherbergjum og góðri baklóð. Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða daddi@remax.is.
- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.