Hraunhamar fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með sérinngangi á neðstu hæð í þríbýlishúsi vel staðsett í Suðurbæ Hafnarfjarðar.
Eignin er skráð 69,5 fm skv. HMS.
Nánari lýsing eignar:Flísalögð
forstofa.
Opið bjart alrými.
Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél. Pláss fyrir ísskáp í innréttingu.
Björt og rúmgóð
stofa og
borðstofa.
Hol.
Svefnherbergi með fataskápum.
Flísalagt
baðherbergi. Handlaug með skáp undir, salerni, sturtuklefi og handklæðaofn. Gluggi.
Rúmgott
þvottahús með ágætis geymsluplássi.
Sameiginlegur garður. Snyrtilegt aðgengi þar hellulögð gangstétt liggur að íbúðinni.
Frábært staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og stofnbraut. Skv. söluyfirliti frá fyrri seljanda hafi eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað:- Þak lagfært 2024
- Baðherbergi endurnýjað að hluta 2020
- Parket endurnýjað 2016
- Gler í gluggum endurnýjað 2020
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2016
Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða á netfangið glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.