Burðarvirki hússins er CLT burðarkerfi frá Element, sem er krosslímt gegnheilt timbur og er sagður heilsueflandi og umhverfisbætandi byggingarmáti.
Íbúðirnar munu vera BREEAM vottaðar og stefnt að “Excellent” einkunn. Væri það í fyrsta sinn á Íslandi sem íbúðarbygging næði þeirri einkunn!
Sérstæð loftræsting frá Swegon fyrir hverja íbúð, sem tryggir loftgæði og innivist. Gólfkerfi frá Granab í Svíþjóð sem tryggir góða hljóðvist.
Innréttingar frá VOKE3 og tæki frá Electrolux. Hágæða baðherbergi eru forframleidd og koma frá Green Box í Danmörku.
Lagnaleiðir lagðar að bílastæðum fyrir rafhleðslu, gert ráð fyrir að hægt sé að leggja að stæðum.
Uppl. veitir Bára Gunnlaugsdóttir lögg. fasteignasali í s: 899-8809 eða bara@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING: Björt og vel skipulögð 74,8 fm 3ja herbergja íbúð á 5.hæð, ásamt geymslu í kjallara. Komið inn í anddyri með skápum og þaðan gengið inn í alrými. Eldhús er með fallegri innréttingu frá Voke3, sem skilast með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og örbylgjuofn. Eldhús er opið inn í bjarta stofu. Útgengt er út á svalir í suður. Baðherbergi er með góðri innréttingu, upphengdu salerni og þröskuldslaus sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Tvö góð svefnherbergi með skápum.
Íbúðin afhendist fullbúin en án gólfefna.
Nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðu verkefnisins
Nánari upplýsingar veitir:
Bára Gunnlaugsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 74 | 62,5 | ||
221 | 73,6 | 62,9 | ||
221 | 74,8 | 62,9 | ||
221 | 82,3 | 64,9 | ||
221 | 75,6 | 62,5 | ||
221 | 78,5 | 62,5 |