DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 4. júní 2026

Skólastígur 26

HæðVesturland/Stykkishólmur-340
144.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
477.809 kr./m2
Fasteignamat
43.700.000 kr.
Brunabótamat
65.490.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2116196
Landnúmer
137328
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Lóð
68,3
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Nýr eignaskiptasamningur er í lokavinnslu. Skv. honum er lóð skipt upp á milli efri og neðri hæðar. Framhluti lóðar tilheyrir efri hæð ásamt palli við bílskúr. 
Gallar
Mismunandi gólfhæð var í holi, stofu / borðstofu, gólf var flotað að hluta til. Vart er við gófhalla  á nokkrum stöðum vegna þessa. 
DRAUMAEIGN Í STYKKISHÓLMI - SEM GÆTI ORÐIÐ ÞÍN 
Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna stórglæsilega og mikið endurnýjaða 158,3fm, fjögurra herbergja hæð með sérinngangi á 2. hæð, ásamt bílskúr í tvíbýlishúsi við Skólastíg 26 í Stykkishólmi. 

Afar falleg eign sem var endurnýjuð að miklu leyti árið 2024 af kostgæfni með fallegan heildarsvip að leiðarljósi í anda  byggingartíma hússins. 


Vinsamlega bókið skoðun á ingunn@domusnova.is eða í síma 856 3566

Komið er inn í notalega forstofu með fallegum flísum á gólfi og sjarmerandi veggfóðri á veggjum, afar falleg hurð skilur forstofuna að frá aðalrými íbúðarinnar. Úr forstofu er komið inn í hol sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með gluggum á þrjá vegu, þar af er einn franskur gluggi. Einstakir bogadregnir veggir prýða alrýmið, þar af einn með fallegu veggfóðri. Loftalistar upp við loft og rósettur í lofti. Úr borðstofu er útgengt út á svalir með glæsilegu útsýni yfir Breiðafjörðinn. Eldhúsið hefur verið endurnýjað á skemmtilegan máta þar sem hluti innréttingar eru fallegir eldri tekk skápar og skúffur í bland við nýja innréttingu. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, útgengt er á svalir úr öðru þeirra. Baðherbergi er endurnýjað á fallegan hátt. Á neðri hæð er annar inngangur inn í íbúðina og er það rými nýtt í dag sem svefnherbergi. Innangengt er úr herberginu í rúmgott þvottahús með skáp og inn af því er lítil geymsla undir stiga. Mjög rúmgóður frístandandi bílskúr fylgir eigninni og er aðkeyrsla að honum sérafnotaréttur sem fylgir íbúðinni og fylgja honum stæði fyrir 2 bíla. 

Núgildandi skráning hjá HMS segir eignina vera 144,2 fm2 þar af er íbúðin skráð 114,9 fm2 og bílskúrinn 29,3fm2,  Er þetta misræmi vegna breytinga þar sem sameign var breytt í séreign íbúðarinnar og bíður nýr eignaskiptasamningur þinglýsingar.

Stykkishólmur er einn af fallegustu bæjum landsins, þekktur fyrir mikla náttúrufegurð og fallega uppgerð hús. Eignin er staðsett í stuttu göngufæri frá miðbænum og höfninni þar sem finna má fjölbreytta veitingastaði, söfn, verslanir o.fl.  Í bænum er skemmtilegur golfvöllur. 

Helstu endurbætur 2024 að sögn seljenda:
  • Gluggar endurnýjaðir á efri hæð í svefnherbergjum, borðstofu og eldhúsi ásamt svalahurðum. Nýjar stein gluggakistur þar sem gluggar eru nýjir. Gluggakistur fylgja með fyrir glugga í stofu sem ekki hafa verið endurnýjaðir. 
  • Svalir klæddar að innan með Viroc plötum, viðarborð á gólfum. Svalirnar hafa verið stækkaðar með timburviðbót þegar að húsið var klætt að utan.
  • Gluggar endurnýjaðir á jarðhæð í þvottahúsi, annar gluggi af tveimur í herbergi og útidyrahurð. Eldri gluggar hafa verið málaðir að utan sem og vestur-hlið hússins.
  • Þvottahús lagfært, gólf lakkað og settur vaskur í borð, tengingar fyrir þvottavél og þurrkara.
  • Búið að gera ráð fyrir fyrir rafhleðslustöð og möguleiki er á því að leggja neysluvatn í bílskúr með lítilli fyrirhöfn. 
  • Verið er að setja nýtt ruslatunnuskýli og möl í innkeyrslu.
  • Ný rafmagnstafla, bæði aðaltafla og tafla fyrir íbúð og dregið nýtt rafmagn í alla íbúðina. Ljósleiðari er kominn inn í hús en hefur ekki verið tengdur. 
  • Nýjar utanáliggjandi ofnalagnir, nýjir ofnar á baði, eldhúsi og stofu.
  • Af fyrri eiganda voru skólplagnir endurnýjaðar innan íbúðar út í götu, ásamt neysluvatnslögnum frá inntaki.
  • Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt tækjum og gólfefnum.
  • Baðherbergi endurnýjað, öll tæki ásamt gólfefnum. 
  • Öll gólfefni endurnýjuð.
  • Opnað var úr holi inn í stofu / borðstofu og settur burðarbiti. Misjöfn gólfhæð var í þessum rýmum en einungis flotuð að nýju að hluta til.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, veggfóður á veggjum, fatahengi.
Hol: Rúmgott hol sem tengir saman öll rými íbúðarinnar, fallegur bogadreginn veggur, vinyl parket á gólfi. 
Stofa / borðstofa: Opið og bjart rými með gluggum á þrjá vegu og útgengi á suðvestur svalir. Glæsilegt útsýni út á Breiðafjörðinn. Vinyl parket á gólfi. 
Eldhús: Rúmgóð innrétting, fallegir tekk efri skápar úr eldri innréttingu ásamt skúffum í neðri hluta innréttingar í bland við nýja innréttingu, innbyggð uppþvottavél, span helluborð, bakaraofn. Borðplata er heil Terrazzo risaflís frá Mood interiors, ítalskar Terrazzo flísar eru á gólfi. 
Baðherbergi: Ítalskar Terrazzo gólflísar, uppgerður vintage vaskur á fótum, sérpöntuð baðtæki í klassísku útliti, baðkar með sturtuaðstöðu, einstakt sporöskjulaga sturtuhengi, handklæðaofn, upphengt salerni. 
Herbergi 1: Rúmgott með góðum fataskáp sem fellur inn í vegg, útgengi á svalir, vinyl parket á gólfi. 
Herbergi 2: Rúmgott með góðum fataskáp sem fellur inn í vegg, vinyl parket á gólfi. 
Neðri hæð:
Gengið er niður teppalagðan stiga á neðri hæð frá eldhúsi.
Herbergi 3: Flísar á gólfi, hurð sem liggur út á lóð. 
Þvottahús: Rúmgott þvottahús er inn af herbergi með skáp.
Geymsla: Inn af þvottahúsi er geymsla undir stiga. 
Bílskúr: Rúmgóður frístandandi bílskúr með rafdrifinni bílsksúrshurð. Flísar á gólfi. Inngönguhurð er á hlið ásamt tveimur stórum gluggum. Pallur fyrir framan þessa hlið skúrsins tilheyrir þó íbúð á neðri hæð. 

Ath! Eignin er ekki skv upprunalegri teikningu. 
Ekki er starfrækt húsfélag í húsinu. 
Athygli er vakin á því að annar eigenda er starfsmaður á Domusnova fasteignasölu
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/06/202334.950.000 kr.27.000.000 kr.144.2 m2187.239 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1973
29.3 m2
Fasteignanúmer
2116196
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.840.000 kr.

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðalækur 20
Bílskúr
Skoða eignina Urriðalækur 20
Urriðalækur 20
800 Selfoss
115.5 m2
Parhús
312
671 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Opið hús:06. júní kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
75.9 m2
Fjölbýlishús
312
1079 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Opið hús:06. júní kl 13:00-14:00
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
54.9 m2
Fjölbýlishús
221
1200 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (206)
Bílastæði
Vetrarbraut 2 (206)
210 Garðabær
73 m2
Fjölbýlishús
312
1067 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin