Betri Stofan og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 og jason@betristofan.is kynnir: Heklureitur - Laugavegur 168 - 75,9 fm íbúð 319 sem er á 3ju hæð á vesturhlið hússins án stæðis í bílageymslu.
Glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Heklureit þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Gólfsíðir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn og auka útsýni. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Íbúðir á efri hæðum hafa eigin þakgarða en sameiginlegur þakgarður verður einnig fyrir alla íbúa í húsinu ásamt fallegum inngarði. Frábær staðsetning í miðborginni en þó fjarri skarkala miðbæjarins.
Heimasíða um verkefniðGlæsileg 3ja herbergja íbúð með gæða ítölskum sérsmíðuðum ljósum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Öll gólfefni fylgja með. Gólfhiti er í íbúðinni og eru gluggar gólfsíðir að hluta. Eignin skiptist í anddyri með fataskáp, baðherbergi með sturtu og þvottaaðstoðu. Auka svefnherbergi að stærðinni 8,1 fm með glugga til austurs. Aðalsvefnherbergið er 11,7 fm að stærð með fataskápum. Aðalrýmið skiptist í stofu og eldhús. Siemens tæki af vandaðri gerðinni. Gluggar í íbúðinni er til vesturs og austurs. Stofan er með útgengi út á vestursvalir. Sérgeymsla að stærðinni 8,1 fm, merkt 003. Fastanúmer íbúðar er: 2529775
Eignin afhendist í september 2025
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati
Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / jason@betristofan.isHlynur Bjarnason, sími 697 9215 / hlynur@betristofan.is
Dagrún Davíðsdóttir, sími 866 1763 / dagrun@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 / atli@betristofan.is
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 / gunnar@betristofan.is
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 / pall@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir sími 899 5533 / gudbjorg@betristofan.is