** Opið hús miðvikudaginn 11. júní frá kl. 17:15 til 17:45 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
FASTMOS kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr við Þinghólsbraut 8 í Kópavogi. Eignin er skráð 190,0 m2 þar af íbúð 146,0 m2 og bílskúr 44,0 m2. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús. Sérstæður bílskúr stendur við húsið. Húsið stendur á 753 m2 gróinni og fallegri lóð. Timburverönd til suðurs með skjólgirðingu. Rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu (sem á eftir að tengja). Spennandi eign á vinsælum stað á Kársnesi í vesturbæ Kópavogs. Stutt í alla helstu þjónustu og vinsæl útivistarsvæði.1994: Þak byggt yfir flatt þak. Húsið klætt að utan. 2006: Bílskúr klæddur og ný bílskúrshurð. 2017: Hiti settur í gólf, skipt um gólfefni á öllu húsinu, baðherbergi endurnýjuð, eldhús endurnýjað. Nýjar innréttingar á baði og í eldhúsi frá Ikea. Laus skápur í hjónaherbergi fylgir húsinu. Sturta, salerni, handlaugar og blöndunartæki koma frá Tengi. Rafmagn yfirfarið og tafla endurnýjuð. 2022: Jarðvegsskipti, hellulögn, hitabræðslurör lögð í plan en eru ótengd. Lagnir endurnýjaðar úti, skipt um skólp, ný kaldavatnslögn tengd og heitavatnslögn yfirfarin.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent straxNánari lýsing:Hol er með flísum á gólfi. Úr holi er opið inn í stofu og borðstofu, eldhús og svefnherbergisgang.
Stofa og borðstofa er björt með flísum á gólfi. Í miðju rýminu er arinn og hlaðinn múrsteinsveggur.
Eldhús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með góðu skápa- og skúffuplássi. Blástursofn og örbylgjuofn frá AEG, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og ísskáp við hlið innréttingar.
Þvottahús með stórum handklæðaofni er inn af eldhúsi. Útgengt í bakgarð og að bílskúr.
Svefnherbergisgangur er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með flísum á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Flísar eru á veggjum að hluta. Góð innrétting með handlaug, vegghengt salerni og "walk-in" sturta með glerskilrúmi. Handklæðaofn er gegnt sturtunni. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Forstofa er með flísum á gólfi. Inn af forstofu er gengið inn í gestasnyrtingu og svefnherbergi.
Svefnherbergi 4 er inn af forstofu með flísum á gólfi. Rýmið er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Gestasnyrting er inn af forstofu með flísum á gólfi og veggjum að hluta, handlaug og vegghengdu salerni.
Bílskúr er skipt upp í bílskúr og geymslu með skilrúmi. Rýmið er ófrágengið að hluta.
Bílaplan er hellulagt og búið er að leggja fyrir snjóbræðslu sem á eftir að tengja.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 143.500.000,-
Verð kr. 164.900.000