**BÓKIÐ EINKASKOÐUN** Laus við kaupsamning. Valhöll kynnir: Góða og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð (2 hæðir upp) í góðu fjölbýli sem verið er að endurbæta að utan.
Samkvæmt þjóðskrá er íbúðin sjálf 72,2 m2 og sér geymsla á jarðhæð 6,5 m2 samtals 78.7 m2. Afnot að sérmerktu bílastæði við húsið er merkt íbúð 303
Elín Alfreðsdóttir lgf er með lykla, bókið skoðun í síma 899-3090 eða elina@valholl.is
Verið er að vinna í að skipta um járn á þaki og seljandi greiðir fyrir þá framkvæmd samkvæmt tilboði, nýlegir gluggar eru á austurhlið en verið er að lagfæra þá framkvæmd.Íbúðin þarfnast endurnýjunar á baðherbergi. Dæmi eru um að eldhúsinnréttingu hafi verið komið fyrir inní stofu í íbúðum með sömu teikningu, og 3. svefnherberginu komið fyrir þar sem núna er eldhús.
Bogadreginn veggur í hurðaropi að stofu er úr timbri, svo það ætti að vera auðvelt að fjarlægja hann fyrir þá sem það vilja. Innihurðar eru endurnýjaðar og harðparket er á öllum rýmum nema á baðherbergi.
Nánari lýsing.
Tveir inngangar í snyrtilega sameign, snyrtilegt sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Andyrir/hol með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús er með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með útgengi út á suðvestursvalir.
Baðherbergi með dúklögðu gólfi, lítilli baðinnréttingu og sturtubaðkari.
Hjónaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi einnig með harðparketi.
Geymsla ásamt hjóla og vagnageymslu á jarðhæð.
Sérmerkt bílastæði fyrir þessa íbúð er merkt íbúð 303.
BÓKIÐ eINKASKOÐUN: Elín Alfreðsdóttir lögiltur fasteignasali í síma 8993090 elina@valholl.is