Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Reynidalur 1, íbúð 205, 260 ReykjanesbærFjögurra herbergja íbúð á annarri hæð, með þremur svefnherbergjum, opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman. Úr eldhúsi er útgengt á svalir. Íbúðin er með inngangi af svalagangi og henni fylgir sérgeymsla á jarðhæð ásamt aðgangi að sameiginlegri hjólageymslu.
Eignin er tóm og laus við kaupsamning.Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 118,5 m², þar af er íbúðin 110,1 m² og sérgeymsla 8,4 m². Eignin er merkt 02-05 og fastanúmer hennar er F2298781. Húsið er byggt árið 2008. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með fataskáp og inngangi af svalagangi.
Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju sem hægt er að sitja við. Eldhúsið er opið að borðstofu og stofu. Úr eldhúsi er útgengt á svalir.
Stofa og
borðstofa eru í samliggjandi alrými með eldhúsi.
Hjónaherbergi er rúmgott með eikarskápum.
Tvö svefnherbergi eru til viðbótar, bæði með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum, með sturtu, upphengdu salerni og innréttingu með vaski.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er með flísum á gólfi.
Gólfefni eru plastparket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Sérgeymsla og sameignSérgeymsla íbúðarinnar er 8,4 m² og er staðsett á jarðhæð hússins. Þar er einnig sameiginleg hjólageymsla.
ByggingarlýsingHúsið er tveggja hæða fjölbýlishús, byggt árið 2008, með flötu þaki. Í húsinu eru ellefu íbúðir. Íbúðirnar eru með sérinngangi og aðkoma að íbúðum á annarri hæð er um útistiga og svalagang.
Lóð, aðkoma og bílastæðiLóðin er 3.709 m² leigulóð með malbikuðum bílastæðum og aðkomu. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu eru 22 bílastæði á lóðinni.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.isErtu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00