Laufkógar, sumarhús í landi Svarfshóls (Vatnaskógur). Lokað svæði með hliði (rafmagnshlið).Fasteignaland kynnir: Sumarhús sem stendur á 5.830 fm leigulóð í landi Svarfhóls í Hvalfjarðarsveit (við Vatnaskóg). Húsið er 49,9 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands og var byggt árið 1995.
.
Lýsing á eign:: Forstofa með parketi á gólfi, fatahengi og góðu skápaplássi. Tvö herbergi með parketi á gólfi. Annað með góðu skápaplássi. Herbegisgangur með parketi á gólfi. Baðherbergi með dúk á gólfi, viðarinnréttingu og sturtuklefa. Stofan er með góðri lofthæð, parketi á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með parketi á gólfi, viðarinnréttingu, sambyggðri eldavél með keramik helluborði. Góður eldhúskrókur.
Geymsla: Gengið er af sólpalli í geymsluna en búið er að breyta henni í gestaherbergi. (þriðja herbergið í húsinu).
Sólpallur með girðingu og skjólgirðingu.
Í þessu húsi eru rafmagnsofnar og hitakútur fyrir neysluvatn.
Hitaveita er á svæðinu.
Lóðin er 5.830 fm leigulóð kjarri vaxin.
Lóðarleiga er um kr. 165.000 á ári. Lóðarleigusamningur er til ársins 2039.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 35.000 á ári.
Möguleiki er að fá hluta af innbú með í kaupum á eigninni.
Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlið).
Akstur frá Reykjavík er ca. 45 mínútur. Veiðikort veitir rétt til að veiða í Eyrarvatni.
Upplýsingar gefur:
Heimir Eðvarðsson löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.isÁrni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 692-3344, netfang: hronn@fasteignaland.is