CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu 74,5 fm tveggja herbergja íbúð á annarri hæð við Maríugötu 1 í Urriðaholti. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, baðherbergi og alrými þar sem stofa og eldhús mynda eitt rými. Útgengi er á rúmgóðan sólpall. Íbúðin er vel staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Árný Daníelsdóttir, aðstoðamaður fasteignasala í s. 693-3905 eða arny@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
Þrívíddarteikning af eigninni:
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-DNánari lýsing:Forstofa: komið er inn í forstofu með góðu skápaplássi. Harðparketi á gólfi.
Stofa/alrými: útgengt út á svalir og sér afnotareit. Harðparketi á gólfi.
Eldhús: innrétting frá GKS er svört með hvítum efri skápum. Öll raftæki eru AEG, bakaraofn, ísskápur með frysti, helluborð og uppþvottavél.
Svefnherbergi: er rúmgott með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: með sturtu, hvítri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni og handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Geymsla: er 4,2 fm og er á fyrstu hæð
Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is
Árný Daníelsdóttir, aðstoðamaður fasteignasala í s. 693-3905 eða arny@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.