Gimli fasteignasala kynnir, Eyrarbraut 17, 806 Selfoss, sem er fallegt og vel við haldið
sumarhús á Syðri-Reykjum í Bláskógarbyggð. Húsið stendur á
1,048 fm gróinni eignarlóð og er svokallað
A-hús með svefnlofti.
Húsið er 45,1 fm að grunnfleti og svo svefnloftið, þar sem eru tvö svefnherbergi og lítið hol. Svefnloftið er ekki talið með í skráðri fermetratölu hússins.
Að auki er 8,3 fm gestahús og er því
skráður heildar fermetrafjöldi hússins 53,4 fm. Á lóðinni er líka nýlegur
14 fm geymsluskúr/gestahús og einnig
4 fm geymsluskúr, en hvorugt er inní skráðum fermetrafjölda.
Við húsið er stór timburverönd með
heitum potti. Fast gjald er fyrir ótakmörkuð not af heitu vatni.
Húsið er í rúmlega einnar klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. Stutt er á golfvellina í Úthlíð, Öndverðarnesi og Kiðjabergi. Þá eru margar helstu náttúruperlur landsins í næsta nágrenni, t.d. Gullfoss og Geysi.
Eignin Syðri-Reykir Eyrarbraut 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 220-5637, birt stærð 53.4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Smelltu hér til að sjá myndband af eigninniHúsið eru timburhús sem stendur á steyptum súlum og er klætt með liggjandi klæðningu. Húsið stendur á1,048 fm eignarlóð í jaðri Syðri-Reykja í Bláskógarbyggð. Húsið skiptist í opið forrými, stofu/borðstofu, eldhús og baðherbergi með 2ja herbergja svefnlofti, sem er ekki inn í skráðum fermetrum. Að auki eru þrjú smáhýsi; 8,3 fm gestahús (skráð), 14 fm geymsluskúr/gestahús (óskráð) og 4 fm geymslaskúr (óskráð).
Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala