Sandskeið, sumarhús á eignarlóð við Þingvallarvatn. Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Sandskeið, E götu í landi Miðfells við Þingvallarvatn. Um er að ræða 44,6 fm hús auk milliloft ásamt 10,6 fm geymslu. Húsið stendur á 5000 fm eignarlóð með fallegu útsýni yfir þingvallarvatn. Gott aðgengi að vatninu. Aðalhúsið var byggt árið 1992 og geymslan árið 2000. Í þessu húsi er borhola fyrir kalt vatn, hitakútur er fyrir neysluvatn og rafmagnsofnar.
Lýsing á eign: Forstofa með flísaparketi á gólfi og góðu skápaplássi. Tvö herbergi með flísaparketi á gólfi. Baðherbergi með flísaparketi á gólfi, hvítri innréttingu og sturtuklefa. Stofan er með góðri lofthæð, flísaparketi á gólfi, kaminu og útgengi út á verönd. Eldhús er með flísaparketi á gólfi, viðarinnréttingu með sambyggðri eldavél með kermik helluborði og uppþvottavél.
Milliloft: Flísaparket á gólfi og opnanlegt fag.
Geymsla: ca. 10 fm og nýtt fyrir verkfæri og áhöld.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu.
Lóðin er 5000 fm eignarlóð, gróin er búið að planta talsvert af trjágróðri.
Þetta er fallegt hús og vel um gengið.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Góð aðkoma og næg bílastæði
Lokað svæði með tveimur rafmagnshliðum (símahlið).
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda er ca. kr. 30.000 á ári.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.