Fasteignaleitin
Opið hús:04. júní kl 17:00-17:30
Skráð 28. maí 2025
Deila eign
Deila

Breiðvangur 30 Íbúð 401

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
107.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
647.822 kr./m2
Fasteignamat
62.850.000 kr.
Brunabótamat
52.950.000 kr.
Byggt 1974
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2074021
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt/ekki vitað
Raflagnir
Yfirfarið að hluta
Frárennslislagnir
Upprunalegt/ekki vitað
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
5,53
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags dagsett 17.3.2025: „Á aðalfundi 2025 voru framkvæmdir á ytri byrði, á grundvelli ástandsskýrslu, kynntar. Fundagestir sem vildu setja upp svalaskjól í stað
viðgerða á svalahurðum og svalagluggum voru beðnir um að koma þeim upplýsingum til stjórnar, sem hefur verið gert og er Verksýn með þær upplýsingar. Á húsfundi 8.2.2025 var umfang framkvæmdanna samþykkt, sjá umræður í fundargerð. Hefur Verksýn hafið útboð í framkvæmdir. Þegar tilboð liggja fyrir verður haldinn annar húsfundur."
Samþykktar framkvæmdir hefjast við eignina í maí 2025 og lýkur samkvæmt áætlun verktaka í nóvember 2025. Framkvæmdir verða greiddar af seljanda. Ekki verður sett upp svalaskjól í íbúðinni. 
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BREIÐVANGUR 30 ÍBÚÐ 401, 220 Hafnarfjörður. LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING. 
Fjögurra herbergi íbúð á efstu hæð (fjórðu), í Norðurbænum með útsýni til sjávar og fjalla meðal annars að Keili og Snæfellsjökli.
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni byggingatæknifræðingi. Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Yfirstandandi framkvæmdir á ytra byrði Breiðvangs 30-32 verða greiddar af seljanda eignarinnar. 


Húsið er steypt, byggt árið 1974. Íbúð 107.9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri/skáli, stofa og borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og þvottahús. 
Í sameign: Anddyri, stigahús Sér geymsla 6.3 m² og helmingshlutur í annarri geymslu í kjallara, hjóla- og vagnageymsla. 

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |

Nánari lýsing: 
Komið er inn í anddyri/skála, mynddyrasími, gangur er innan við skála, fataskápar (Kvikk) yfir heilan vegg. 
Stofa og borðstofa, útgengt út á svalir í vesturátt með útsýni yfir Garðaholt, Álftanes, Reykjanes og að Snæfellsjökli. 
Eldhús, Kvikk innrétting með eyju, tækjaskáp og búrskáp, Siemens spanhelluborð í eyju, háfur og Siemens ofn í vinnuhæð, innbyggð AEG uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. 
Hjónaherbergi er með fataskápum (Kvikk) yfir heilan vegg.
Barnaherbergin eru tvö, hvorugt með fataskápum (fataskápar á gangi eru hugsaðir fyrir herbergin). 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar, Damixa blöndunartæki, upphengt salerni, vaskinnrétting, handklæðaofn, gluggi, baðherbergi var endurnýjað 2015.  
Þvottahús, er innaf eldhúsi, vinnuborð, vaskur, rafmagnstafla, gluggi. 
Gólfefni: Flæðandi gegnheilt parket (íþróttagólfefni) er á öllum rýmum nema baðherbergi og þvottahúsi. Flísar á baðherbergi. Málað gólf í þvottahúsi. Innihurðar frá Birgisson.
Rafmagnstafla í íbúð hefur verið endurnýjuð. Sameign er nýmáluð, teppi á stiga er nýlegt. 
Sér geymsla 6.3 m² er í kjallara, og helmingshlutur í annarri geymslu í kjallara (ekki skráð í m² tölu eignarinnar).

Breiðvangur 30-32 samanstendur af tveimur stigagöngum, átta íbúðir eru í hvoru húsi, tvær íbúðir á hæð. Húsið er staðsteypt, timbur gluggar og hurðar, valmaþak. 
Lóðin er sameiginleg, steypt stétt liggur að húsinu frá bílastæði. Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninniLóð er sameiginleg 3305.8 m² leigulóð í eigu Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 207-4021.

Stærð: Íbúð 107.9 m².
Brunabótamat: 53.900.000 kr.
Fasteignamat: 63.900.000 kr
Byggingarár: 1974.
Byggingarefni: Steypa.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byr fasteignasala
https://www.byrfasteign.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfaskeið 102
Bílskúr
Skoða eignina Álfaskeið 102
Álfaskeið 102
220 Hafnarfjörður
119.7 m2
Fjölbýlishús
312
584 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hörgsholt 29
Skoða eignina Hörgsholt 29
Hörgsholt 29
220 Hafnarfjörður
111.9 m2
Fjölbýlishús
413
608 þ.kr./m2
68.000.000 kr.
Skoða eignina Flatahraun 1
Bílastæði
Opið hús:03. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Flatahraun 1
Flatahraun 1
220 Hafnarfjörður
80.2 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhvammur 15
Bílskúr
Opið hús:02. júní kl 16:15-16:30
Skoða eignina Suðurhvammur 15
Suðurhvammur 15
220 Hafnarfjörður
104.4 m2
Fjölbýlishús
312
670 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin