LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallegt og vel viðhöldnu 211,4 m2 parhúsi á tveimur hæðum við Fjallalind 39 á einstaklega veðursælum stað þar sem hægt er að njóta sólarinnar frá morgni til kvölds. Húsið stendur frábærlega vel þar sem að fyrir framan húsið er timburverönd með skjólgirðingu . Fyrir aftan húsið er aflokaður garður með timburverönd með skjólveggjum ,heitum potti og útisturtu. Stór geymsla með hita og rafmagni. Garðurinn er með fallegum gróðri og grasivaxinni lóð með fallegri grjóthleðslu.Samkvæmt FMR er íbúðarhutinn 176,7 m2 ásamt 34,7 m2 bílskúr. Efri hæðin er töluvert undir súð og eru þvi nýtanlegir fermetrar mun fleiri en skráningin segit til um. Fasteignamat 2026 verður 161.250.000 kr.Helstu endurbætur síðustu ára
* 2019 fræstur gólfhiti á neðri hæð og gólfið flotað og lakkað.
* 2019 skipt um allar vatnslagnir.
* 2019 Baðherbergið á neðri hæð endurnýjað.
* 2019 skipt um allar innihurðar.
* 2020 endurnýjuð verönd, heitur pottur settur ásamt útisturtu og geymsluskúr á lóð.
* 2020 allt rafmagn endurnýjað og led innfeld lýsing í alrými á neðri hæð.
* 2023 þak yfirfarið og málað
* 2024 húsið málað að utan ásamt þvi að allir gluggar voru málaðir.
* 2025 svalahurðar endurnýjaðar.Nánari lýsing - neðri hæðar-124,6 m2 Forstofa meðflísalögðu gólfi og fataskáp.
Eldhús með fallegri vandaðri Axis innréttingu með granít borðplötu og ofni í vinnuhæð .Gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskápur í innréttingu, eyja með granít borðplötu með span helluborði og viftuháf yfir. Flotað lakkað gólf.
Stofan er með flotuðu lökkuðu gólfi og útgengi út í aflokaðan skjólgóðan garð með timburverönd með skjólveggjum, heitum potti með útisturtu, heit útigeymsla.
Hjónaherbergi með fataskáp, flotuðu lökkuðu gólfi, útgengi út í bakgarð
Herbergi rúmgott með fataskáp og flotuðu lökkuðu gólfi,
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum. Walk-in sturta og upphengt salerni. Falleg Axis innrétting með efri og neðri skápum, handklæðaofn.
Þvottahús með flísum á gólfi og snyrtilegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. skolvaskur.
Efri hæð -52,1 m2- steypur teppalagður stigi. Sex veluxgluggar sem gefa fallega birtu á efri hæð.Sjónvarpshol með parketi á gólfi , væri auðvelt að útbúa 5 svefherbergið úr þessu rými.
Herbergi rúmgott innbyggðum fastaskáp
Herbergi rúmgott innbyggðum fastaskáp
Baðherbergi með flísalögðu gólfi , vaskur , gert er ráð fyrir sturtu , nýtt klósett, hvít nett innrétting.
Tvær súðargeymslur með rennihurðum.
Myndavéla og öryggiskerfi er i húsinu .Bílskúrinn er með rafhleðslustöð. Heitt og kalt vatn, rafmagn. Bílaplanið er hellulagt með snjóbræðslu fyrirutan hliðar stæðið. Stæði fyrir fjóra bíla. Eignin er á frábærum stað í grónu hverfi þar sem að stutt er í alla almenna þjónustu eins og skóla,leikskóla, verslanir og heilsugæslu. Salalaug og Versalir eru í göngufæri.Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is