Fasteignaleitin
Skráð 30. mars 2025
Deila eign
Deila

Kolagata 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
117.5 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
107.150.000 kr.
Brunabótamat
82.000.000 kr.
Byggt 2018
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2363597
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
Upprunalegt, 2018
Raflagnir
Upprunalegt, 2018
Frárennslislagnir
Upprunalegt, 2018
Gluggar / Gler
Upprunalegt, 2018
Þak
Upprunalegt, 2018
Svalir
Vestursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Glæsilega 117,5 fermetra 3ja herbergja íbúð (204) með svölum við Kolagötu 3 (Hafnartorgi) í húsi byggðu af ÞG Verk 2018 í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við alla menningu og verslun og þjónustu sem Miðborgin hefur upp á að bjóða. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. 

Íbúðin er hið glæsilegasta eins og fyrr greinir með fallegum innréttingum frá Noblessa og borðplötum úr vönduðu Meganite Carrara efni. Öll eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Siemens og vínkæli í eldhúseyju. Aukin lofthæð og allar innihurðar extra háar og framleiddar af HBH smíðaverkstæði. Myndavéladyrasími og blöndunartæki af vönduðustu gerð frá Vola (Tengi). Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum. Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss.

Bókið skoðun, Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 8951427, magnus@eignamidlun.is

Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, rúmgóða stofu og borðstofu, sjónvarpshol, góðar svalir, eldhús með eyju, tvö baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla á jarðhæð 6,1 fm.

Forstofa er með harðparketi á gólfi og skápum. Fataskápar eru sprautulakkaðir með innvols frá Innval af vandaðri gerð. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet.
Eldhús hefur harðparket á gólfi og glæsilegri innréttingu frá Noblessa með eyju. Borðplata er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður kæliskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir. Auk þess innfelld kaffivél og innbyggður gufugleypir í eldhúseyju.
Stofa hefur harðparket á gólfi og gluggum í tvær áttir. Stofa er opin við eldhús og rúmagósetustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Svalir eru skjólgóðar til vesturs. 
Baðherbergi I er afar glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og miklu skápaplássi. Stór gluggi út rólegri verslunargötu og baðherbergi II inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi II er glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Sjónvarpshol er innaf stofu og möguleiki er að breyta því í annað svefnherbergi.
Þvottaherbergi hefur flísar á gólfi, innréttingu og vaski. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymslan er staðsett á geymslugangi í sameign og er 6,1 fm að stærð.


Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Bílakjallari.
Í bílakjallaranum, sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins. Mikið verður lagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum. Íbúum hússins gefst kostur á að gera langtímasamning um leigu á bílastæði, hægt að smella hér fyrir frekari upplýsingar.


Byggingaraðili.
Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins.  Meginmarkmið ÞG Íbúða ehf  er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við viðskiptavini.

Nánari upplýsingar veitir:

Magnús Þórir Matthíasson lögg. fasteignasali í síma 895-1427 eða magnus@eignamidlun.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/05/201973.300.000 kr.290.000.000 kr.361.3 m2802.657 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Eignamiðlun ehf.
https://www.eignamidlun.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Pósthússtræti 13
Bílastæði
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Pósthússtræti 13
101 Reykjavík
105.5 m2
Fjölbýlishús
313
943 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 23
Skoða eignina Tryggvagata 23
Tryggvagata 23
101 Reykjavík
85 m2
Fjölbýlishús
322
1293 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 26
Bílastæði
Skoða eignina Mýrargata 26
Mýrargata 26
101 Reykjavík
131.1 m2
Fjölbýlishús
423
1144 þ.kr./m2
150.000.000 kr.
Skoða eignina Ránargata 14
Opið hús:06. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Ránargata 14
Ránargata 14
101 Reykjavík
82.2 m2
Fjölbýlishús
413
887 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin