BYR fasteignasala kynnir í einkasölu SELÁS 5-7 ÍBÚÐ 202, 700 Egilsstaðir. Þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með bílskúr. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt, byggt árið 1971. Eignin skiptist í íbúð 113.1 m² og bílskúr 30.9 m², samtals 144.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, skáli, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Bílskúr.
Eignin var endurnýjuð að mestu leyti að innanverðu á árunum 2024-2025, meðal annars var: Sett ný innrétting og ný tæki í eldhúsi þ.e. helluborð, veggofn og vaskur. Baðherbergi endurnýjað þ.e. flísar á veggjum, innrétting, hreinlætistæki og sturtuaðstaða.
Skipt um öll gólfefni, að undanskildu þvottahúsgólfi. Vínilparket á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar á anddyri og baðherbergi.
Skipt um innihurðar, öll rými spörstluð og máluð og skipt um sólbekki. Innrétting og vaskur í þvottahúsi.
Nýir fataskápar í barnaherbergi og anddyri og hurðar á skáp í hjónaherbergi (nýlegur skápur).
Skipt um rofa og tengla. Loftaefni í alrými og eldhúsi 20mm steinullarplötur með hvítri húð.
Nánari lýsing: Anddyri með flísum á gólfi, þrefaldur fataskápur, þaðan er innangengt í þvottahús.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá alrými út á yfirbyggðar svalir (svalalokun).
Eldhús, Brúnás innrétting, helluborð, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu (fylgir ekki).
Hjónaherbergi með fataskápum yfir heilan vegg (sexfaldur).
Herbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting og skápur, sturta, handklæðaofn og gluggi.
Þvottahús, flísar á gólfi, innrétting með vaski, pláss fyrir tvær vélar á gólfi, gluggi.
Geymsla er innan íbúðar.
Bílskúr, málað gólf, bílskúrshurð með rafrænni opnun.
Gólfefni: Flæðandi vinýlparket er á alrými, skála og herbergjum. Flísar á anddyri, baðherbergi og þvottahúsi. Málað gólf í geymslu og bílskúr.
Selás 5-7 er steinsteypt þriggja hæða hús, þak er risþak klætt járni. 5 íbúðir eru í húsinu, tvær íbúðir efst, ein á miðhæðinni ásamt bílskúrum og tvær í kjallara, geymslur eru í kjallara.
Sameiginleg lóð er frágengin
. Húsfélag er starfrækt í eigninni. Lóð er sameiginleg 1350 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-6112.Stærð: Íbúð 113.1 m². Bílskúr 30.9 m². Samtals 144.0 m².
Brunabótamat: 60.490.000 kr.
Fasteignamat: 44.350.000 kr
Byggingarár: 1971.
Byggingarefni: Steypa.