Glæsilegt hús með 5 svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr sem hefur verið mikið endurnýjað að innan á síðustu árum.
Tvöfaldur og mjög rúmgóður bílskúr. Flísalagt og gryfja öðru megin. Bílfær hurð og hleri sem auðvelt er að breyta í opnanlega hurð. Skápar. Innangengt úr bílskúrnum í gegnum geymslu með niðurfalli og hurð út í garð til norðurs. Þaðan er gengið áfram inn í þvottahús með tækjum í góðri vinnuhæð í innréttingu og góðum skápum. Þaðan er hægt að ganga inn í eldhús, nýjar flísar á gólfi, innrétting máluð og ný bekkplata og tæki. Stofa er mjög rúmgóð, parketlögð (quickstep), þaðan er gengt út á pall til suðurs. Arin, sem er þó ekki í notkun. Gestasalerni inn af forstofu. Forstofa með sömu flísum og eldhús, með þreföldum forstofuskáp. Stigi upp er með sama gólfefni og stofa og efri hæð. Á efri hæð er hol, hjónaherbergi, tvö fataherbergi, fjögur barnaherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergi með glugga og svölum til suðurs og glugga til austurs, inn af því er rúmgott fataherbergi. Baðherbergi er með fallegu frístandandi baðkari og góðri sturtu, bæði með gylltum blöndunartækjum. Lítið fataherbergi fyrir barnaherbergin. Tvö af barnaherbergjunum eru með hurðir út á svalir til austurs. Í vesturenda eru tvö svefnherbergi, annað mjög rúmgott.
Að utan lítur húsið nokkuð vel út nema kominn er tími á að mála þak og veggi.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
28/03/2023
31.550.000 kr.
33.000.000 kr.
243.7 m2
135.412 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.