OPIÐ HÚS - ASPARFELL 8 - MIÐVIKUDAGINN 22. OKT - FRÁ KL.17.30 - 18.00.
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta og mikið endurnýjaða 102,5 fm 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi, bílskúr tilheyrir íbúðinni. Ný gólfefni, hurðar innan íbúðar, skápar og gólflistar. Skipt var um gler og glugga í íbúðinni fyrir ca 2-3 árum síðan ásamt því hefur húsið sjálft fengið gott viðhald á undanförnum árum.
Eignin gæti verið laus við kaupsamning.Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslun, líkamsrækt og bókasafn svo lítið eitt sé nefnt.
Íbúðin er 72,8 fm (merkt 07-0503), geymslan er 4,2 fm (merkt 07-0037) og bílskúr er 25,5 fm (merkt 07-0001) samtals er eignin skráð 102,5 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með parketi á gólfi og skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðvestur svalir sem snúa inn í garðinn.
Eldhús er með parketi á gólfi, hvítri viðarinnréttingu með dökkri viðarplötu og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skápum.
Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, opin sturta, upphengt wc og skúffur undir vask.
Þvottahús er á hæðinni, eingöngu fyrir þær íbúðir sem þar eru.
Geymsla í sameign á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílskúr er með stein á gólfi.