Nýtt á skrá! Orrahólar 7 Reykjavík - Bókið skoðun.
Frábær útsýnisíbúð með svalalokun og sérstæði í lokuðum bílakjallara!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallega og vel skipulagða 91,8 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á 7. hæð með rúmgóðum svölum með svalalokun til suðurs í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi með lyftu við Orrahóla 7 í Reykjavík. Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni (merkt 7D). Afar glæsilegt útsýni er frá íbúðinni yfir Elliðavatn, út á sundin, að Bláfjöllum, Esjunni, Móskarðshnjúkum, Snæfellsnesi, Akrafjalli, Hellisheiði og víðar . Eldhús er með borðkrók. Stofa er mjög rúmgóð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Myndavéladyrasími er í húsinu og eftirlitskerfi í sameign. Rafmagnsopnun á hurðun í sameign jarðhæðar. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni eingöngu fyrir þær íbúðir sem eru á hæðinni. Einnig eru tenglar fyrir þvottavél/þurrkara innan baðherbergis íbúðar.
Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús. Sérmerkt stæði á lóð. Frágengin og gróin lóð með fallegri aðkomu að húsinu. Sameign er afar snyrtileg með flísum og teppi á sameign. Sameiginlegar svalir á hæðinni til vesturs. Nýleg rafmagnstafla í sameign hússins.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarparadís við Elliðaárdalinn. Sutt er í verslun og þjónstu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í göngufjarlægð.
Nánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa: Er rúmgóð með plastparketi á gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Afar glæsilegt útsýni og útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og með svalalokun. Nýlega búið að mála veggi og svalagólf eftir viðhaldframkvæmdir. Glæsilegt útsýni út á Elliðavatn og til fjalla.
Eldhús: Með kork á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Borðkrókur og gluggi til norðus með fallegu útsýni út á sundin og til fjalla.
Hjónaherbergi: Með dúk á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi: Með plastparketi á gólfi og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, salerni, vaskur og gluggi til norðurs.
Sérgeymsla: Íbúðar er staðsett á jarðhæð sem er 4,8 fermetrar að stærð.
Bílastæði í bílakjallara: Sérmerkt bílastæði, merkt 7D er í bílakjallara.
Í sameign:Sameiginlegt þurrkherbergi: Fyrir eingöngu þær íbúðir sem eru á hæðinni. Málað gólf og þvottasnúrur.
Vagna- og hjólageymsla: Er rúmgóð og með máluðu gólfi. Snyrtileg með gluggum og útgengi á baklóð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is